Fréttir

Bein út­sending: Borgar­full­trúar kveðja

Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu hefst klukkan 12. Kveðjuræður borgarfulltrúar eru á dagskrá en nokkuð margir borgarfulltrúa kveðja í dag þar sem 16 ef 23 kjörnum borgarfulltrúum hafa aldrei áður setið í borgarstjórn. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi.

Innlent

Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri

Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum.

Erlent

„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“

Þessa spurningu fékk undirritaður nokkrum sinnum yfir helgina frá fólki forvitnu um gang mála við myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Tíu dagar eru liðnir frá kjördegi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn náði inn níunda manni og Hildur Björnsdóttir settist óumdeilt í bílstjórasætið í borgarstjórnarrútunni. Óvíst er hverjir komast um borð og virðist Hildur ekki tilbúin að útiloka draumalausn með fjögurra flokka meirihluta.

Innlent

Hoppandi reiðir vegna fram­göngu Hall­gríms í þætti um Davíð

Rúv bauð upp á heimildaþátt um Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í gærkvöldi þar sem farið var yfir feril hans. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður gerði með öðrum handrit og ræddi við samferðarmenn hans. Hún segir þáttinn ekki uppgjörsþátt heldur minningarþátt.

Innlent

Hafi ekki hætt þrátt fyrir í­trekuð högg frá konunni

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun, með því að hafa ekki látið af samræði við konu, eftir að hún gerði honum ljóst að hún vildi ekki lengur stunda við hann samræði. Það gerði konan meðal annars með því að slá hann ítrekað.

Innlent

Æfðu á­rás á Suður-Kóreu

Skammdrægrum skotflaugum og stórskotaliðsflaugum og öðrum vopnum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Forsvarsmenn herafla Suður-Kóreu segja að eldflauginni, og öðrum ótilgreindum vopnum, hafi verið skotið á haf út en Norður-Kóreumenn hafa ekki tjáð sig um æfingarnar. Ráðamenn í Rússlandi og Kína lýstu á dögunum yfir andstöðu gegn refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu.

Erlent

Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi

Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag.

Innlent

Úrkomulítið sunnan­lands en skúrir á Austur­landi

Í dag er spáð vestan og suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Skúrir, en skýjað með köflum á Austurlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annað kvöld. Hiti verður líklega á bilinu sjö til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands.

Veður

Hóta frekari á­rásum og hvetja sendi­full­trúa til að flýja Kænugarð

Stjórnvöld í Rússlandi hafa hótað kerfisbundnum árásum á Kænugarð þar sem skotmörkin yrðu stjórnstöðvar og drónaframleiðsla Úkraínumanna. Sendifulltrúar og erlendir ríkisborgarar eru hvattir til þess að yfirgefa höfuðborgina sem fyrst og almennir borgarar til að halda sig frá opinberum byggingum og hernaðarinnviðum.

Erlent

Von­brigði ef ballið er búið á Hótel Flat­ey

Hótel Flat­ey hefur verið ákveðinn mið­punktur þess lífs sem iðar í Flat­ey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfir­leitt opið í sumar er lík­leg til að hafa tölu­verð áhrif á menningarástandið á þessum rómaða áfangastað.

Innlent

Aug­lýsir eftir ein­stak­lingi sem angar af Dior-ilmvatni

Brotist var inn í einbýlishús á Kársnesi í Kópavogi um helgina og ýmsum verðmætum stolið. Húsráðendur segja um mikið fjárhagslegt og tilfinningalegt tjón að ræða og eru ekki vongóð um að endurheimta þýfið. Vandað hafi verið til verka og brotamennirnir sneitt hjá öryggiskerfi hússins.

Innlent

Margrét Þór­hildur aftur inn á sjúkra­hús

Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæði hennar. Um er að ræða afleiðingu falls, að því er fram kemur í tilkynningu frá konungshirðinni. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem Margrét er lögð inn á sjúkrahús.

Erlent

Hita­met í maí slegið í Bret­landi

Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands.

Erlent

Flutt á sjúkra­hús með hraði vegna inn­vortis fíkniefnasmygls

Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að kalla til aðstoðar sjúkraflutningamanna í gærkvöldi þegar kona sem var þar í haldi féll í yfirlið. Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, í samtali við Vísi. Samkvæmt heimildum Vísis var nokkur viðbúnaður en sendir voru þrír sjúkrabílar að lögreglustöðinni.

Innlent

Ru­bio von­góður um vopna­hlé

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi.

Erlent

Arf­taki 757 aftur á teikni­borði Boeing

Boeing-flugvélaframleiðandinn hefur að nýju hafið undirbúning að smíði nýrrar tegundar farþegaþotu sem ætlað er að brúa bilið í stærðarflokki flugvéla á milli 737 MAX og 787 Dreamliner. Miðað við lýsingar virðist Boeing stefna að smíði flugvélar sem svipa mun til 757-þotunnar í stærð, útliti og flugdrægi.

Erlent