Fréttir

Kjaftfullt í golfinu í Grinda­vík

Það sem er að gerast hjá Golfklúbbi Grindavíkur jaðrar við að mega heita kraftaverk. Fyrir tveimur árum, í kjölfar eldanna á Reykjanesi, sendu forráðamenn klúbbsins út hálfgert neyðarkall og voru komnir á fremsta hlunn með að hætta starfseminni. Bærinn var tómur en golfvöllurinn stóð keikur.

Innlent

Vildi að betur hefði verið staðið að upp­sögnum hótelstarfsfólks

Forstjóri Íslandshótela segir að hann hefði viljað standa betur að þeirri hópuppsögn hátt í þrjú hundruð starfsfólks Hilton og Natura hótela sem Berjaya stóð að og tilkynnt var um í gær. Hann hefði viljað halda starfsfólkinu betur upplýstu og fyrr. Þá gerir hann ekki ráð fyrir öðru en að ráða allt fólkið aftur til starfa.

Innlent

Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref.

Innlent

Birta loks um­deilda „krufningu“ á fram­boði Harris

Forsvarsmenn Landstjórnar Demókrataflokksins (DNC) birtu í gær umdeilda skýrslu þar sem rýna átti í hvað fór úrskeiðis hjá flokknum í síðustu forsetakosningum. Ken Martin, stjórnandi DNC, hefur setið á skýrslunni um langt skeið en hún þykir ekki vel unnin og hafa tafir á birtingu hennar leitt til deilna innan flokksins. Martin sjálfur þykir ekki í öruggri stöðu.

Erlent

Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Ís­lands

Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill að þjóðin fái að vita fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hvaða samningsmarkmið Ísland ætli að leggja upp með í loftslags-, orku- og flugmálum. Hún segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugsamgöngum til og frá Íslandi og spurði ráðherra hver kostnaðurinn yrði ef Ísland næði ekki markmiðum um allt að 55 prósenta samdrátt í losun.

Innlent

Lokun gistiskýlis fyrir hælis­leit­endur sé á­fanga­sigur

Gistiskýli Rauða krossins í Borgartúni var lokað í dag og allir sem þar dvöldu fluttir í húsnæði ríkislögreglustjóra, RLS, í Bæjarhrauni. Heimferða- og fylgdardeild RLS ber nú ábyrgð á því að þjónusta hópinn sem þar dvaldi. Rauði krossinn segir um áfangasigur að ræða og viðurkenningu á rétti hópsins til lágmarksþjónustu.

Innlent

Fengu ekki Baldur

Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar.

Innlent

Sam­fylkingin mót­mælti til­lögu borgar­stjóra

Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar.

Innlent

Út­vegaði njósnurum gögn um ó­vini Rússa

Maður sem var á árum áður háttsettur innan leyniþjónustu Austurríkis hefur verið dæmdur fyrir að njósna fyrir Rússa. Egisto Ott lak upplýsingum um blaðamenn og aðra andstæðinga stjórnvalda í Kreml til Moskvu og seldi fartölvur og síma í eigu austurríska ríkisins til Rússa. Þetta gerði Ott fyrir hönd annars austurrísks njósnara sem flúði til Rússlands.

Erlent

Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn

Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar Víðisson yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þeir hafi handsalað það að halda viðræðum áfram daginn eftir, en svo hafi skrítin atburðarás farið af stað sem lauk með því að Sjálfstæðisflokkur sleit viðræðum.

Innlent

Ára­tuga fjár­svelti náms­gagna bitni á skóla­starfi á öllum stigum

Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það.

Innlent

„Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“

Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda.

Innlent

Vætu­samt veður fram á mánu­dag

Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 5-13 m/s og rigningu með köflum, einkum sunnantil, en súld austanlands og norðanlands með kvöldinu. Hiti 4 til 15 stig, svalast austanlands.

Innlent

Trump sendir 5.000 her­menn til Pól­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur greint frá því að hann hyggist senda 5.000 hermenn til Póllands, aðeins nokkrum dögum eftir að varnarmálaráðuneytið tilkynnti að ekkert yrði af fyrirhuguðum 4.000 manna flutningi þangað.

Erlent

Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð

Tilkynning um mikinn eld fyrir utan hús á Siglufirði barst til slökkviliðs Fjallabyggðar í dag. Þegar slökkvilið bar að garði hafði eldurinn náð í klæðingu, verönd og svalir hússins og höfðu rúður brotnað vegna hita.

Innlent

Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldunga­deildinni

Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings fóru í helgarfrí í dag án þess að greiða atkvæði um frumvarp sem ætlað er að fjármagna aðgerðir ríkisstjórnar Trumps varðandi innflytjendur. Þá hafa Repúblikanar einnig neitað að samþykkja eins milljarðs dala fjárveitingu vegna veislusalarins sem Trump er að reisa á lóð Hvíta hússins.

Erlent

Flug­menn gleyma því að þeir séu í flughermi

Flug í flughermum er orðið svo raunverulegt að flugmenn gleyma því stundum að þeir séu í sýndarveruleika, segir yfirmaður þjálfunar Icelandair. Þar fagna menn því í dag að hafa náð hundrað þúsund flugtímum í flughermum.

Innlent