Fréttir

„Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“

Fyrrverandi þingmaður segir mál manns á Suðurnesjum sem lögregla skaut með rafbyssu sýna fram á að „rafbyssugríma“ lögreglu sé fallin. Almenningi hafi verið talin trú um að mál lögreglu yrðu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti með notkun rafbyssa, málið sýni fram á hið gagnstæða.

Innlent

Árni skóla­meistari heldur em­bættinu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur sinnt embættinu undanfarin tíu ár en hann heyrði af því í útvarpinu nýverið að til stæði að auglýsa embættið

Innlent

Skipuð rektor MH fyrst kvenna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor.

Innlent

Ellefu Evrópu­ríki aug­lýsa eftir hættu­legum dæmdum glæpa­mönnum

Lögregluyfirvöld í ellefu Evrópuríkjum hafa tekið höndum saman og hrint af stað átaksverkefni til þess að freista þess að koma höndum yfir eftirlýsta glæpamenn. Allir eiga mennirnir það sameiginlegt að hafa þegar verið dæmdir í að minnsta kosti fimm ára fangelsi fyrir alvarlegan glæp eða glæpi.

Erlent

Eldur kom upp í vélarúmi báts

Skipstjóri lítils fiskibáts óskaði eftir aðstoð eftir að eldur kom upp í vélarrúmi bátsins rétt norðaustur af Skagaströnd um klukkan fjögur í nótt.

Innlent

Trump segist munu ræða við for­seta Taí­van

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“

Erlent

Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld

Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt, líklega þremur til tíu metrum á sekúndu. Svo er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti á bilinu fjögur til 15 stig, svalast norðaustanlands.

Veður

Hafa þurft að draga veru­lega úr olíuframleiðslu vegna á­rása

Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí.

Erlent

Nokkrir hlut­falls­lega á pari við Heiðu

Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.

Innlent

Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk

Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks.

Erlent

Lög­reglu­menn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps

Tveir lögregluþjónar sem voru að störfum í þinghúsi Bandaríkjanna þegar stuðningsmenn Donalds Trump forseta ruddu sér leið þar inn þann 6. janúar, hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir vilja koma í veg fyrir að Trump-liðar geti greitt bandamönnum forsetans úr nýstofnuðum sjóði sem ætlað er að útvega fólki sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur.

Erlent

Snekkjueigandinn stefnir ís­lenska ríkinu

La Datcha Marine X Ltd., sem á snekkjuna La Datcha sem siglt var inn Eyjafjörðinn í mars, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni. Skipverjum var meinuð koma til landsins á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland.

Innlent

Fluttur til Noregs með bruna­sár á um helmingi líkamans

Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið.

Innlent

Sjálf­stæðis­flokkurinn enn á flugi

Fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er áfram á uppleið samkvæmt nýrri könnun Maskínu og fer úr átján prósentum í tæp tuttugu. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur frá áramótum aukist um ríflega sex prósentustig. 

Innlent

Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs

Lögmaður manns á fimmtugsaldri sem var beittur rafbyssu eftir að hafa hellt yfir sig eldfimum vökva segir lögreglu hafa stórskaðað umbjóðanda sinn og gengið of harkalega fram. Maðurinn var fluttur til Noregs með sjúkraflugi og er með brunasár á um helmingi líkamans. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og rætt við lögmanninn.

Innlent

Klemmdist undir rútu

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag ósk um aðstoð vegna slyss í Hafnarfirði. Þar hafði maður klemmst undir rútu á verkstæði. Viðkomandi var fluttur í sjúkrabíl á bráðamóttöku.

Innlent

„Er for­sætis­ráðherra á­nægð með hag­stjórnina?“

Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega.

Innlent