Fréttir „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
„Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Ríkisendurskoðandi segir að engin formleg tilkynning hafi borist til embættisins frá starfsfólki um einelti, kynbundið eða kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. Hann myndi taka á slíkum málum. Hann harmar að innri mál embættisins séu til umfjöllunar í fjölmiðlum og hefur ekki íhugað stöðu sína. Innlent 27.10.2025 19:00
Áhyggjur af lánaframboði og ógnarlangar biðraðir Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hefur fylgt í fótspor Landsbankans og takmarkað lánaframboð. Lánastofnanir hafa haldið að sér höndum vegna nýlegs dóms Hæstaréttar. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands fara yfir stöðuna í myndveri. Innlent 27.10.2025 18:13
Vara við ferðum á Fagradalsfjall þar sem aðstæður geti orðið hættulegar Lögreglan á Suðurnesjum varar við ferðum á Fagradalsfjall og ráðleggur ferða- og göngufólki að fresta ferðum inn á svæðið næstu tvo daga. Slæm veðurspá gefi tilefni til að vara við ferðum inn á svæðið en búist er við hvössum vindi, snjókomu eða slyddu og versnandi skyggni. Innlent 27.10.2025 18:03
Kristmundur verður lögreglustjóri á Austurlandi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Kristmund Stefán Einarsson í embætti lögreglustjóra á Austurlandi. Skipun Kristmundar tekur gildi þann 1. nóvember næstkomandi. Innlent 27.10.2025 17:22
Mildari spá í kortunum Útlit er fyrir mildara veðri á morgun en spáð var fyrir í gær að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Gular veðurviðvaranir hafa samt sem áður verið gefnar út þar sem varað er við versnandi akstursskilyrðum. Veður 27.10.2025 17:17
„Vonandi klárast þetta á morgun“ Fundi flugumferðastjóra og Samtaka atvinnulífsins var slitið á fimmta tímanum í dag. Nýr fundur hefur verið boðaður á morgun og í samtali við fréttastofu sagðist Sigríður Margrét Oddsdóttir, vonast til að viðræður deiluaðila klárist á morgun. Innlent 27.10.2025 17:00
Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Réttað er yfir pólskri konu sem heldur því fram að hún sé Madeleine McCann. Hún var handtekin í febrúar og er ákærð fyrir umsáturseinelti gegn foreldrum McCann. Konan hefur mætt heim til hjónanna og hringt ítrekað í þau í þeirri von að þau trúi að hún sé týnda dóttir þeirra. Erlent 27.10.2025 16:43
Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Donald Trump segist vera áfjáður í að bjóða sig fram til forseta þriðja sinni árið 2028 þrátt fyrir að stjórnarskrá Bandaríkjanna leggi blátt bann við því. Fyrrverandi aðalráðgjafi hans segir áætlun þegar til staðar um að Trump sitji áfram í trássi við stjórnarskrána. Erlent 27.10.2025 15:32
Sá látni var á rjúpnaveiðum þegar hann varð fyrir voðaskotinu Karlmaður á sextugsaldri sem lést nærri Apavatni á föstudag var á rjúpnaveiðum við annan mann þegar hann varð fyrir voðaskoti. Enn er unnið að því að safna gögnum af vettvangi á meðan veður leyfir. Innlent 27.10.2025 14:53
Kvartanir mannsins um ómannúðlega meðferð áður til skoðunar hjá NEL Lögreglan á Norðurlandi eystra segir kvartanir manns til Nefndar um eftirlit með lögreglu, NEL, áður hafa verið til meðferðar hjá nefndinni án athugasemda hennar. Fjallað var um mál mannsins í kvöldfréttum Sýnar í gær. Ekki er fjallað um það í yfirlýsingu embættisins hvort kvartanir mannsins séu á rökum reistar en þó tekið fram að embættið hafi ekki skilað sínum athugasemdum til NEL. Innlent 27.10.2025 14:37
Ungi ökumaðurinn á Ísafirði úr lífshættu Ungur karlmaður sem hafnaði í sjónum við Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði á föstudagskvöldið er úr lífshættu. Hann er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Þetta staðfestir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, í samtali við Vísi. Innlent 27.10.2025 14:24
Nefnd SÞ gegn pyndingum skráir erindi hælisleitenda sem vísað var frá Íslandi Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum hefur skráð kvörtun karlmanns á þrítugsaldri, frá Kamerún, sem vísað var frá Íslandi í upphafi þessa árs á grundvelli Dyflinnarreglugerðar. Manninum var vísað til Möltu þar sem stjórnvöld áttu að taka umsókn hans um vernd til meðferðar. Manninum var vísað aftur til heimalands síns þremur dögum eftir komu til Möltu og sætti þar, samkvæmt lögmanni hans, pyntingum og ómannúðlegri meðferð. Maðurinn fer nú huldu höfði í Kamerún. Innlent 27.10.2025 14:01
Ófremdarástandi lýst: Þrír stjórar í leyfi, einelti og hrun í starfsánægju Ófremdarástand er sagt hafa ríkt hjá Ríkisendurskoðun um nokkurt skeið, eða frá því fljótlega eftir að Guðmundur Björgvin Helgason var kjörinn ríkisendurskoðandi af Alþingi. Ítrekað hafi komið upp svokölluð EKKO-mál, sem varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Guðmundur Björgvin þvertekur fyrir það og segir starfsandann góðan hjá embættinu. Innlent 27.10.2025 13:01
Bíða í allt að þrjá tíma: „Ætli það sé ekki bara helvítis veðurspáin“ Eigandi dekkjaverkstæðis segist ekki muna eftir öðru eins ástandi og því sem skapaðist í morgun þegar langar biðraðir í dekkjaskipti mynduðust víða. Fréttastofa tók púlsinn á röð við eitt verkstæðið þar sem sumir höfðu beðið í þrjár klukkustundir. Gul veðurviðvörun tekur gildi klukkan sex annað kvöld. Innlent 27.10.2025 12:53
Hafa fundið Cessna-vélina Björgunarlið á Grænlandi hefur fundið Cessna-vélina sem leitað hefur verið að nærri Nuuk síðan á laugardag. Einn var um borð og komst hann ekki lífs af. Erlent 27.10.2025 12:48
Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Æðsti dómstóll Kamerún lýsti Paul Biya sigurvegara kosninga sem fóru fram fyrr í mánuðinum í dag. Biya er elsti forseti í heimi en hann verður á hundraðasta ári þegar kjörtímabili hans lýkur. Fjórir hafa fallið í átökum mótmælenda og öryggissveita en stjórnarandstaðan telur að brögð hafi verið í tafli í kosningunum. Erlent 27.10.2025 12:12
Alger óvissa í lánamálum og margra tíma bið eftir dekkjaskiptum Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er hættur að veita fasteignalán á breytilegum vöxtum. Framkvæmdastjóri sjóðsins telur hættu á að vextir muni hækka eftir niðurstöðu í vaxtamálinu svokallaða. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 27.10.2025 11:46
Kláfur á Ísafirði fari í opinbera kynningu Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að leggja til við bæjarstjórn að nauðsynlegar skipulagsbreytingar vegna kláfs upp á Eyrarfjall ofan bæjarins fari í opinbera kynningu. Tillaga að nýju skipulagi var unnin af verkfræðistofunni Eflu fyrir Eyrarkláf ehf. Innlent 27.10.2025 11:46
Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Lögmaður konu, sem taldi sig hafa lagt fram kæru á hendur fyrrverandi sambýlismanni sínum í ágúst árið 2024, fékk þau svör í apríl árið eftir að engin rannsókn hefði verið hafin á meintu heimilisofbeldi mannsins í garð konunnar. Nefnd um eftirlit með lögreglu telur ljóst að mistök hafi verið gerð við skýrslutöku yfir konunni. Innlent 27.10.2025 10:55
Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna snjókomunnar sem von er á suðvestantil á landinu á morgun. Veður 27.10.2025 09:58
Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar, segir erfitt að sjá fyrir hvort hægt er að gera upp Covid-heimsfaraldur fyllilega og áhrif faraldursins á samfélagið allt. Hann segir viðbrögðin hafa tekið mið af útliti veirunnar þegar faraldurinn var í gangi og að þau hefðu ekki getað verið öðruvísi á þeim tíma. Aðgerðir hafi tekið mið af góðum gögnum. Innlent 27.10.2025 09:49
Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Fjórða stigs fellibylurinn Melissa sem stefnir nú á Jamaíka gæti styrkst enn frekar áður en hann gengur á land þar. Hann yrði þá öflugasti fellibylur sem dunið hefur á eyjunni í fleiri áratugi. Erlent 27.10.2025 08:53
Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Löng röð er að Gúmmívinnustofunni í Skipholti til að komast í dekkjaskipti. Norbert, starfsmaður verkstæðisins, segir líklega um þriggja klukkustunda bið. Hann segir mjög mikið hafa verið að gera í síðustu viku en ekki eins og í dag. Innlent 27.10.2025 08:47
Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Abdullah konungur af Jórdaníu segir að friður sé forsenda þess að erlendur liðsafli verði sendur inn á Gasa. Jórdanía og Egyptaland hafa skuldbundið sig til að koma að því að þjálfa nýtt lögreglulið á Gasa. Erlent 27.10.2025 07:59
Milei vann stórsigur í Argentínu Javíer Milei forseti Argentínu leiddi flokk sinn til stórsigurs í þingkosningum sem fram fóru í landinu um helgina. Kosið er um hluta þingsæta á miðju kjörtímabili fosetans og er sigurinn sagður skýrt merki um að landsmenn séu margir ánægðir með áherslur hans í efnahagsmálum sem hafa endurspeglast í miklum niðurskurði og frjálshyggju. Erlent 27.10.2025 07:30
Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Forsvarsmenn svokallaðra „matarbanka“ í Bandaríkjunum eru uggandi um ástandið sem þeir búast við að muni skapast í nóvember, þegar stjórnvöld hætta að fjármagna mataraðstoð til handa þeim sem þurfa. Erlent 27.10.2025 07:15
Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu voru boðaðar út vegna mæðgina á húsbíl sem urðu innlyksa í Landmannalaugum sökum færðar í gær. Innlent 27.10.2025 07:14
Um sautján stiga frost í Skagafirði í nótt Útlit er fyrir norðaustan golu eða kalda í dag þar sem verður skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Veður 27.10.2025 07:03
Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið neitun og á að vísa úr landi eru týndir og eftirlýstir. Þeim hefur fjölgað verulega sem er fylgt úr landi og þeim sem fara sjálf. Kristín María Gunnarsdóttir, deildarstjóri heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra, segir flesta sem er vísað frá landi skilja að þau séu komin á endastöð. Fæst séu sátt, en flest skilji stöðu sína. Innlent 27.10.2025 06:46
Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Bandaríkjamenn hafa undanfarnar drepið fjölda manns um borð í bátum undan ströndum Venesúela og Kólumbíu án dóms og laga eða mikils rökstuðnings. Stjórn Trump segir alla bátana hafa verið á leið til Bandaríkjanna með sendingar af fíkniefnum. Öldungadeildarþingmaður segir „raunhæfan möguleika“ á loftárásum á Venesúela. Erlent 26.10.2025 23:48