Innherji

„Sann­kallað efna­hags­legt og pólitískt sjálfs­mark“ hjá ríkis­stjórninni

Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri.

Innherji

Sam­einaður líf­eyris­sjóður fer yfir tuttugu pró­senta hlut í að­eins einu fé­lagi

Þótt lífeyrissjóðirnir Gildi og Festa, sem hafa samþykkt að sameinast síðar á árinu, muni að óbreyttu fara með vel yfir fimmtungshlut í Reitum þá ættu þeir ekki að þurfa selja sig niður fyrir þau mörk með hraði eftir nýlegar lagabreytingar. Í júlí og ágúst stóð Gildi að umfangsmikilli sölu á bréfum í nokkrum Kauphallarfélögum fyrir samtals vel yfir tíu milljarða.

Innherji

Fjár­festar veðja á meiri verð­bólgu en áður eftir kynningu á fjár­laga­frum­varpi

Þrátt fyrir áform um hallalausfjárlög á komandi ári, sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu, hafa skuldabréfafjárfestar tekið fremur illa í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en verðbólguvæntingar á markaði hafa hækkað umtalsvert í morgun. Fjármálaráðherra boðar að aðhaldsstig ríkisfjármálanna, sem er áætlað lítillega neikvætt á þessu ári, verði „allnokkuð“ en samhliða því er útlit fyrir að hreinn lánsfjárjöfnuður batni umtalsvert á árinu 2027.

Innherji

Kjölur bætist aftur í hóp stærri hlut­hafa Reita

Fjárfestingafélagið Kjölur, sem á tímabili var einn allra umsvifamesti einkafjárfestirinn í Reitum, hefur bæst á nýjan leik í hóp stærstu hluthafa fasteignafélagsins. Fáeinir mánuðir eru síðan félagið seldi öll bréf sín fyrir nærri fjóra milljarða.

Innherji

Telja ótíma­bært að af­skrifa NATO þrátt fyrir á­föllin í for­setatíð Trumps

 Víðfemt net bandalaga vestrænna ríkja undir forystu Bandaríkjanna hefur orðið fyrir meira tjóni á fyrstu átján mánuðum síðara kjörtímabils Donalds Trump en á öllu því fyrra. Tveir fyrrverandi háttsettir embættismenn Bandaríkjastjórnar telja engu að síður að NATO geti staðið af sér áfallið og jafnvel orðið öflugra, að því gefnu að það takist að endurmóta sambandið við Evrópu og endurvekja traust á því að Washington standi við varnarskuldbindingar sínar.

Innherji

Góðar for­sendur fyrir því að verð­bólgan hjaðni „jafn­vel all­hratt“ á næstunni

Fjármálaráðherra þrætir enn fyrir að aukning í mældri verðbólgu stafi einkum af hækkun opinberra gjalda, sem seðlabankastjóri hefur sagt vera „staðreynd“, og segir þær fullyrðingar ekki eiga sér stoð í gögnum. Hann telur góðar forsendur fyrir því að verðbólgan geti hjaðnað „allhratt“ á næstunni og bendir á að það fáist varla staðist til lengdar að húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs hækki umfram aðra verðmælikvarða á íbúðamarkaði.

Innherji

Út­breiddar vísitölu­tengingar sagðar geta gert verð­bólguna þrálátari

Hið opinbera ætti almennt að horfa frá því að vísitölubinda gjaldskrár og ganga ekki sjálfkrafa út frá því að samningar um opinber innkaup séu verðtryggðir. Þá kemur til álita að takmarka hversu oft leiguverð má taka breytingum og beina langtímafjárfestum, meðal annars lífeyrissjóðum, í auknum mæli að óverðtryggðum eignum með því að breyta „áherslum og hvötum þeirra.“

Innherji

Viðsnúningur í rekstri Akta með auknum eignum í stýringu

Eftir erfiðleika í rekstri undanfarin ár samhliða verðlækkunum á mörkuðum og útflæði úr sjóðum varð töluverður viðsnúningur í afkomu Akta á fyrri árshelmingi þegar félagið skilaði yfir áttatíu milljóna hagnaði. Framkvæmdastjóri Akta og stærsti hluthafinn seldi nýlega meira en þriðjunginn af öllum hlut sínum í félaginu.

Innherji

Gengi Amaroq hækkar skarpt þegar fé­lagið var tekið inn í vísi­tölur FTSE

Hlutabréfaverð Amaroq, sem var nýlega skráð á aðalmarkaðinn í London, hefur hækkað nokkuð eftir að ljóst varð að auðlindafélagið yrði tekið inn í tvær vísitölur hjá FTSE Russell síðar í þessum mánuði. Innkoman þýðir að Amaroq kemst á radarinn hjá stærri hópi fjárfesta en alþjóðlegir vísitölusjóðir þurfa núna að kaupa í félaginu.

Innherji

Brýna stjórn­völd og Seðla­bankann að horfa meira á fram­boðs­hlið markaðarins

Stjórnendur fjárfestingafélagsins Langasjávar, sem er meðal annars umsvifamikið í verkefnum tengt byggingarstarfsemi, vara við því að langvarandi samdráttur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis geti leitt til vaxandi spennu á húsnæðismarkaði þegar vextir taka að lækka og eftirspurn eykst á ný. Þeir brýna fyrir stjórnvöldum og Seðlabankanum að horfa í auknum mæli til framboðshliðar markaðarins með því að stuðla að umhverfi sem ýti undir fjárfestingu og uppbyggingu.

Innherji

Vara­seðla­banka­stjóri varar við hættu á „skarpri að­lögun“ í byggingar­geiranum

Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor.

Innherji

Gæti gefið eftir með haustinu en munum ef­laust á­fram búa við sterka krónu

Góð staða helstu útflutningsgreina, sem birtist meðal annars í hækkandi afurðaverði í sjávarútvegi og „mjög sterku“ ferðamannasumri, samhliða háu vaxtastigi hefur ýtt undir gengishækkun krónunnar og er raungengið núna í hæstu hæðum. Sérfræðingur á gjaldeyrismarkaði segir að á meðan sú staða helst óbreyttu sé fátt sem bendi til þess að gengið muni hreyfast mikið og því áfram útlit fyrir sterka krónu.

Innherji

Krónan vegur upp á móti mót­vindi hjá N1 og mæla enn með kaupum

Þótt afkomuspáin hjá Festi fyrir þetta ár hafi verið lækkuð vegna þrýstings á framlegð N1 þá telur hlutabréfagreinandi að áhrifin sé að mestu tímabundin, en verðmatsgengi félagsins helst nánast óbreytt. Á móti vegur sterkur rekstur Krónunnar auk þess sem vænt samlegð vegna kaupanna á Lyfju hefur meira en tvöfaldast frá upphaflegum áætlunum.

Innherjamolar

Krefst riftunar á nærri 500 milljóna greiðslum til stærsta við­skipta­vinar Play

Þrotabú Play hefur höfðað mál gegn Airport Associates og tengdum félögum þar sem krafist er riftunar á greiðslum upp á samtals um 470 milljónir sem voru inntar af hendi í aðdraganda falls flugfélagsins. Flugafgreiðslufyrirtækið varð fyrir miklum áhrifum af gjaldþroti Play í fyrra þegar tekjur og afkoma skruppu saman, en ráðandi hluthafi þess var jafnframt stór fjárfestir og varaformaður í stjórn Play.

Innherji

Markaðurinn að van­meta svig­rúm Arion til út­greiðslna til hlut­hafa

Arion banki ætti að geta skilað hluthöfum sínum um tólf til fjórtán prósenta árlegri heildarávöxtun til næstu þriggja ára, einkum í formi arðgreiðslna og endurkaupa eigin bréfa, að mati greinenda norræns fjárfestingabanka sem telur bréf Arion vera talsvert undirverðlögð á markaði. Fjárfestar eru sagðir vanmeta svigrúmið sem Arion hefur til útgreiðslna.

Innherji

Gengis­styrking krónunnar að undan­förnu kemur BlueBay „alls ekki á ó­vart“

Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur einu stærsta skuldabréfastýringarfélagi Evrópu, sem er jafnframt umsvifamikill eigandi íslenskra ríkisskuldabréfa, ekki á óvart en hann telur að ef já-ið verður ofan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi á nýjan leik aðildarviðræður við ESB þá muni fjárfestar fara að veðja á samleitni vaxta við evrusvæðið.

Innherji

Stöndum saman um hei­lög mál

Frelsið er fjöregg þjóðarinnar sem okkur ber að varðveita. Þjóð sem hefur lotið erlendu yfirvaldi ætti að þekkja mikilvægi eigin ákvörðunarvalds. Lítil þjóð á ekki að berjast við sjálfa sig þegar grundvallarhagsmunir hennar eru í húfi. Hún á að standa saman um heilög mál eins og réttinn til að stjórna sjálf nýtingu auðlinda sinna til sjós og lands.

Umræðan

ESB-kosning á radar er­lendra fjár­festa í ís­lenskum verð­bréfum

Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum.

Innherji

Þrátt fyrir mikla hækkun er raun­gengið talið að­eins „ör­lítið“ yfir­verðlagt

Á meðan sum útflutningsfyrirtæki eru í auknum mæli farin að kvarta undan skertri samkeppnishæfni vegna sögulega hás raungengis krónunnar þá sýnir nýlegt mat bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Íslands að það er ekki mjög yfirverðlagt með hliðsjón af því sem samrýmist þjóðhagslegu jafnvægi. Sjóðurinn hefur ekki áhyggjur af sjálfbærni erlendrar stöðu þjóðarbúsins, þótt hún hafi veikst eilítið síðustu ár, en varar við því að hækki launakostnaður áfram umfram framleiðniaukningu muni það grafa undan stöðu útflutningsgreina.

Innherji

Spá verð­mætari bylgju nýrra lyfja á markað hjá Al­vot­ech

Alvotech er að nálgast „mikilvægan vendipunkt“ eftir margra ára uppbyggingu þar sem áhersla fjárfesta færist frá eftirlitsáhættu tengdri FDA yfir í markaðssetningu nýrra lyfja og tekjuvöxt, að sögn greinenda Bank of America, sem mæla með kaupum í frumskýrslu sinni um félagið. Hlutabréfaverð Alvotech rauk upp í dag en greinendur bandaríska bankans telja að næsta bylgja nýrra hliðstæðulyfja frá félaginu geti reynst verðmætari en þau sem hafa áður komið á markað.

Innherji

Reksturinn batnar en hátt elds­neytis­verð setur Icelandair þröngar skorður

Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.

Innherji