Netumferð tryggari á eftir 20. október 2004 00:01
Netumferð innanlands á ekki að truflast þó svo að samband falli niður við umheiminn eftir að settur var upp speglunarpunktur fyrir einn af rótarnafnaþjónum netsins við skiptipunkt íslenskrar netumferðar (RIX - Reykjavík Internet Exchange) í Tæknigarði við Dunhaga í Reykjavík síðasta fimmtudag. Speglaður var einn af þrettán rótarnafnaþjónum netsins, en þeir sjá um að vísa uppflettingum léna rétta leið. "Hér áður kom stundum fyrir að umferð um sæstreng truflaðist, en svo hefur líka komið upp að einstakar netveitur hafi misst samband við útlönd vegna einhverra bilana. Nú halda viðskiptavinir þeirra sambandi við íslenskar vefsíður," segir Maríus Ólafsson hjá Interneti á Íslandi. Ólíklegra er þó nú en áður að umferð um sæstreng falli niður eftir að Farice-sæstrengurinn bættist við CANTAT-3 strenginn. "Svo batnar líka viðbragðstíminn á netinu, fer úr 80 millisekúndum niður í tvær, en það er svo sem ekkert sem almennir netnotendur verða varir við," bætti Maríus við. Að uppsetningu speglunareintaks rótarnafnaþjónsins stóðu RIPE NCC (Réseaux IP Européens Network Coordination Centre) og Internet á Íslandi hf. (ISNIC).
Fréttir Innlent Tækni Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira