Nýr meirihluti L-lista og D-lista á Héraði 26. október 2004 00:01
Forráðamenn L-lista Héraðslistans, sem er listi félagshyggjufólks, og D-lista Sjálfstæðisflokks, undirrituðu í kvöld samkomulag um samstarf í meirihluta bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Skúli Björnsson, oddviti L-lista og Soffía Lárusdóttir, oddviti D-lista, undirrituðu meirihlutasamkomulagið sem gildir fram að næstu sveitarstjórnarkosningum árið 2006. Soffía Lárusdóttir verður forseti bæjarstjórnar og Skúli Björnsson verður formaður bæjarráðs. Listarnir eru sammála um að ganga til viðræðna við Eirík Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóra Austur-Héraðs, um starf bæjarstjóra hins nýja sveitarfélags. Í tilkynningu frá fulltrúum nýs meirihluta segir að stefnan sé að skapa öflugt og fjölskylduvænt sveitarfélag, með skilvirka stjórnsýslu verði í stakk búin til að takast á við lögboðnar skyldur sem og ný verkefni. Markmiðið sé að efla Héraðið sem félags- og menningarheild og treysta þar mannlíf til framtíðar. Auk þess sem fram kemur í meirihlutasamkomulagi L-lista og D-lista, byggir starf meirihlutans á Málefnaskrá vegna atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaganna og viðauka hennar. Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður haldinn 3. nóvember næstkomandi og þá verður meirihlutasamkomulagið kynnt fulltrúum minnihluta bæjarstjórnar með formlegum hætti.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Innlent Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Erlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Fleiri fréttir Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Sjá meira