Námskeið um Bach og tónlist hans 3. nóvember 2004 00:01
Johann Sebastian Bach (1685-1750) samdi einhver stórfenglegustu tónverk sem um getur í vestrænni tónlistarsögu. Nú stendur fyrir dyrum námskeið sem Endurmenntunarstofnun Háskólans stendur fyrir í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem leitast er við að skýra þau trúarlegu, fagurfræðilegu og heimspekilegu viðhorf sem liggja að baki tónlist hans. Nokkur frægustu verka hans eru skoðuð sérstaklega, þar á meðal kirkjukantötur, Magnificat, Jóhannesarpassían og messan í h-moll. Einnig verður fjallað um Bach-endurreisnina á 19. og 20. öld. Aðgöngumiði að barokktónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem Hamrahlíðarkórinn ásamt breskum einsöngvurum flytur meðal annars Magnificat Bachs, er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og kennari við Listaháskóla Íslands, er leiðbeinandi á námskeiðinu sem hefst þriðjudaginn 16. nóvember, verður í þrjú skipti og lýkur svo með tónleikunum 2. desember. Endurmenntun Háskólans veitir nánari upplýsingar en námskeiðsgjaldið er 15.200 krónur.
Nám Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira