Menning

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í ár.
Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í ár. Getty

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og kennari klassískum bókmenntum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Sænska akademían greindi frá þessu á fréttamannafundi sem hófst klukkan 11, en Nóbelsverðlaunin verða formlega afhent í Stokkhólmi þann 10. desember á ártíð Alfreðs Nobel.

Anne Carson er fædd í Toronto í Kanada 21. júní 1950 og ólst upp í ýmsum kanadískum smábæjum. Hún menntaði sig í fornklassískum bókmenntum, er með doktorsgráðu í þeim fræðum frá Toronto-háskóla og hefur kennt við ýmsa bandaríska háskóla. Carson hefur skrifað nítján skáldverk, þýtt sjö forngrísk verk og vísar mikið í goðafræði og forngrískar bókmenntir í skrifum sínum. Hún er stödd á Íslandi í dag og var að hlusta á vindinn þegar formaður Nóbelsnefndarinnar tilkynnti henni fregnirnar. 

Þekktustu verk Carson eru Eros the Bittersweet (1986), Autobiography of Red (1998) og Men in the Off Hours (2000). Í umsögn Nóbelnefndarinnar sagði að Carson hlyti verðlaunin fyrir „djarft og hugvitssamt höfundarverk sitt, sem væri í glettnu samtali við klassísku hefðina og hefði skapað ný form fyrir samtímabókmenntir.“

Carson kom fyrst til Íslands árið 2008 þegar hún dvaldi í listamannadvöl á Vatnasafninu í Stykkishólmi árið 2008 og heillaðist þá af landinu. Hún hefur verið með annan fótinn á Íslandi síðan þá, býr hluta ársins á landinu og fengu hún og maður hennar, rithöfundurinn Robert Currie, íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. 

Þá hlaut Carson Vigdísarverðlaunin árið 2023 fyrir að hafa brotið blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Hér að ofan má sjá upplestur Carson úr bókinni Short Talks í Gröndalshúsi á nýársdegi 2021.

Ungverski rithöfundurinn László Krasznahorkai hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum á síðasta ári en hann er þekktur fyrir krefjandi póstmódernískar skáldsögur sínar, þar af er þeirra þekktust Satantango. Árið áður hlaut suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang verðlaunin.


Tengdar fréttir

Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.