Minnistöflur í daglegu amstri 20. desember 2004 00:01 "
Ég er náttúrlega með stóra fjölskyldu og í fullri vinnu þannig að ég þarf á því að halda að vera hraust," segir Bryndís. "Ég fer því í leikfimi að meðaltali fjórum sinnum í viku og passa vel upp á mataræðið. Ég tek líka vítamín og hef góða reynslu af birkiösku sem hreinsar blóðið og styrkir ónæmiskerfið, og svo tek ég alltaf inn Fosfóser-minnistöflur. Þær hjálpa mér í daglegu amstri þar sem ég þarf að muna ótrúlegustu hluti. Ég finn að ég er einbeittari ef ég tek þær og þá man maður auðvitað betur," segir Bryndís. Desember er annasamur hjá Bryndísi, eins og öðru verslunarfólki, en jólatörnin byrjar fyrr í húsgagnaverslunum en annars staðar. "Fólk kaupir stærri hlutina fyrr, eins og sófasett og borðstofuborð. Seinna kaupir fólk svo jólagjafir eins og skrifborð fyrir börnin eða hægindastól fyrir afa." Bryndís á þrjú börn á aldrinum ellefu, átta og tveggja ára og reynir að gefa sér tíma til að undirbúa jólin í rólegheitum með fjölskyldunni. "Ég baka alltaf smávegis, það hefur ekkert breyst," segir hún hlæjandi. "Nú hafa krakkarnir bara meira með það að segja hvað er bakað. Ég er líka svo heppin að eiga góðan eiginmann þannig að þetta gengur allt eins og í sögu."
Heilsa Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira