Handtekinn með mikið magn vopna 11. febrúar 2005 00:01
Riffill, öxi og hnífar voru meðal vopna sem lögreglan í Reykjavík fann í bíl manns sem er grunaður um að hafa framið tvö vopnuð rán í borginni í gær og þrjú sjoppurán fyrr í vikunni. Hann hefur sennilega verið að leggja á ráðin um enn eitt ránið þegar lögreglumenn sáu bíl vera að sniglast á torkennilegan hátt umhverfis verslunamiðstöðina í Suðurveri. Við nánari athugun þótti þeim sem ökumaðurinn líktist lýsingum starfsfólks á ránsstöðunum á ræningjanum. Maðurinn var því handtekinn á staðnum og fannst talsvert af peningum á honum auk hettu til að hylja andlitið. Hann gisti fangageymslur í nótt og hefur í morgun játað á sig flest ránanna. Þótt maðurinn hafi í öllum tilvikum sýnt tilburði til að hylja andlit sitt sýna eftirlitsmyndavélar úr fleiri en einum ránsstaðanna að þar var sami maður á ferð. Maðurinn er um þrítugt og er fréttastofunni ekki kunnugt um hvort hann hefur áður gerst brotlegur við lög. Þrátt fyrir að hann hafi í öllum tilvikum hótað afgreiðslufólki með einhvers konar vopnum vann hann engum líkamlegt mein, en mörgum var illa brugðið.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Fleiri fréttir Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Sjá meira