Ruslfæði verði bannað í skólum 8. mars 2005 00:01
Offita barna og heilsufarsvandamál þeim fylgjandi hafa aukist í Bandaríkjunum og vill Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, taka á þeim málum með því að bæta mataræði barna í skólum. Hann ætlar að leggja fram frumvarp sem bannar sölu á svokölluðu ruslfæði í skólum Kaliforníu -- það verður því ekki lengur heimilt að selja óhollt fæði í sjálfsölum á skólalóðum en þess í stað verða ávextir og grænmeti í boði. Schwarzenegger lýsir jafnframt yfir stuðningi sínum við frumvarp demókrata þar sem lagt er til bann á gosdrykkjum í ríkisreknum skólum. Það eru fleiri en ríkisstjórinn sem taka á málunum því nú bjóða sex skólar í Orlando nemendum sínum hollt fæði. Það er gert í samstarfi við Dr. Arthur Agatston, lækni og höfund South-Beach matarkúrsins. Skólayfirvöld segjast þó ekki fylgja þeim matarkúr sérstaklega en vissir þættir kúrsins séu þó notaðir til viðmiðunar.
Heilsa Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira