Fljótandi skóli við Faxagarð 13. apríl 2005 00:01 "
Allt okkar starf miðar að fækkun slysa og óhappa á sjó. Við erum með 15 mismunandi námskeið sem snúast um að þjálfa menn í notkun á öryggisbúnaði skipanna og slysavörnum um borð. Þau lengstu standa í fimm daga," segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna sem er um borð í Sæbjörgu við Faxagarð. Hilmar segir alla sem stunda sjómennsku skylduga til að sækja námskeið. "Hér á landi eru kröfur um símenntun í öryggismálum þannig að sjómenn verða að mæta hér á námskeið eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Það fer svo eftir því fyrir hvaða störf er verið að þjálfa hvaða námskeið henta hverjum og einum." Hann segir engan mega fara á sjó nema ljúka öryggisþjálfun. Þó sé hægt að fá undanþágu til skamms tíma. "Ef einhver ætlar í sumarafleysingu og hefur ekki fengið öryggisfræðslu þá byrjar hann á því að skrá sig á námskeið hjá skólanum. Hafi hann ekki tök á að sækja það strax þá getur hann fengið undanþágu í allt að sex mánuði. En aðeins einu sinni. Þetta var gert til að koma til móts við þær aðstæður sem hér skapast stundum þegar skyndilega vantar mann um borð og kallað er í einhvern strák á bryggjunni," segir Hilmar brosandi. Eitt af hlutverkum skólans segir Hilmar vera að þjálfa áhafnir kaupskipa samkvæmt alþjóðlegum staðli og hann getur þess að skólinn hafi lokið úttektarferli vegna gæðastjórnunar samkvæmt ISO 9001:2000 en það var eitt af skilyrðum þess að veita þjálfun á alþjóðavísu.
Nám Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira