Banna kveikjara í flugi 15. apríl 2005 00:01
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa lagt bann við því að einstaklingar hafi sígarettukveikjara á sér eða í handfarangri í flugi til og frá Bandaríkjunum. Bannið sem gildir um allar tegundir kveikjara tók gildi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugmálatjórn á Keflavíkurflugvelli. Þar segir einnig að um langt skeið hafi verið í gildi bann í öllum löndum við að flytja kveikjara í farangri sem fer í farangurslestir flugvéla en nú nær bannið einnig til kveikjara í farþegarými til og frá Bandaríkjunum. Stjórn samgönguverndar í Bandaríkjunum (US Transportation Security Administration) hefur gefið út fyrirmæli um að þetta bann eigi við um allt flug til og frá Bandaríkjunum í loftförum innlendra sem erlendra flugrekenda. Þar er einnig áréttað að stranglega er bannað að hafa kveikjara í lestarfarangri. Farþegum er eindregið ráðlagt að skilja kveikjara og önnur eldfæri eftir heima áður en farið í flug til eða frá Bandaríkjunum og koma þannig í veg fyrir óþarfa tafir í flughöfnum. Brot á reglum um flutning bannaðra hluta getur varðað háum sektum í Bandaríkjunum fyrir þá sem hafa slíka hluti í fórum sínum þegar komið er inn á svæði flugvalla eftir vopnaleit eða um borð í flugvélar.
Erlent Fréttir Lög og regla Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira