Samstaða um umsókn í Öryggisráðinu 3. maí 2005 00:01
Forsætisráðherra segir fulla samstöðu hafa verið milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Það hafi ekki verið mistök. Verið er að skoða kostnað við framboðið en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Hann segir utanríkisþjónustuna skrifa meira á reikning framboðsins en efni séu til. Davíð Oddsson utanríkisráðherra lýsti því yfir á föstudag að vaknað hefðu áleitnar spurningar varðandi kostnað við framboð til Öryggisráðsins sem væri samkvæmt kostnaðaráætlun um 600 milljónir króna. Kostnaðurinn gæti svo orðið enn meiri yrði kosningabaráttan hörð. Útkoman væri óviss og verið væri að skoða í utanríkisráðuneytinu hvort farið yrði af stað með framboðið eða ekki. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir málið ósköp einfalt. Ljóst sé að þrjú lönd sækist eftir tveimur sætum í Öryggisráðinu og því þurfi að fara í kosningabaráttu til að fá sæti í ráðinu. Nú sé verið að skoða málið Hann segir að full samstaða hafi verið um það milli allra flokka á sínum tíma að ráðast í framboðið og segir það síður en svo hafa verið mistök, enda vilji Íslendingar vera jafnokar Norðurlandanna í utanríkismálum. Hann vill ekki svara því hvað sé ásættanlegur kostnaður. Hann vill heldur ekki svara því hversu miklu sé búið að kosta nú þegar til málsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Lalli Johns er látinn Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira