Gagnrýnir Ríkislögreglustjóra hart 22. september 2005 00:01 "
Það liggur fyrir að hjá Ríkislögrelgustjóraembættinu eru stunduð óvönduð og óheiðarleg vinnubrögð sem nú hitta fyrir yfirmenn stofnunarinnar og þeir kveinka sér undan í fjölmiðlum." Þetta segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í harðorðri yfirlýsingu sem barst fjölmiðlum fyrir stundu. Jón Ásgeir fer þar hörðum orðum um ummæli Arnars Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, í fjölmiðlum í gær og lýsir jafnframt eftir viðbrögðum hærra settra hjá embættinu, Haraldi Jóhannessyni og Jóni H.B. Snorrasyni. Jón Ásgeir vísar enn fremur alfarið á bug fullyrðingum Arnars um að embætti Ríkislögreglustjóra hafi gætt heiðarleika og fagmennsku í máli Baugs. Jón Ásgeir segir þrennt; hægang og lengd rannsóknar, óljós ákæruatriði og sífellt ný og ný sakarefni, styðja þetta sjónarmið sitt. Forstjórinn efast enn fremur um bókhaldskunnáttu efnahagsbrotadeildar sem hann segir hafa týnt út gögn frá Baugi sem hentuðu málflutningi ákæruvaldsins. Yfirlýsing Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í heild Fagmennska hjá RLS? Eftir Jón Ásgeir Jóhannesson. Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá RLS, hefur verið sendur út af örkinni af yfirmönnum sínum, þeim Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra og Jóni H. B. Snorrasyni, saksóknara embættisins, til að verja rannsóknaraðferðir og vinnubrögð embættisins við rannsókn og ákæru í svokölluðu „Baugsmáli“. Arnar hefur í viðtölum við RÚV, Stöð 2 og fleiri fjölmiðla í dag og í gær einkum lagt áherslu á tvennt, heiðarleika og fagmennsku embættisins. Varðandi fagmennskuna liggur fyrir lögfræðileg álitsgerð Jónatans Þórmundssonar, prófessors í refsirétti, um rannsóknaraðferðirnar, dags. 7. apríl 2005. Í sem skemmstu máli er niðurstaða hans sú að fyrirtækið Baugur Group hf. „sé fremur fórnarlamb lögregluaðgerða en lögbrota af hálfu stjórnenda sinna“. Bendir hann m.a. á hve harkalegar og óvægnar fyrstu rannsóknaraðgerðir voru, „allt byggt á heiftúðugri og ótrúverðugri kæru eins einstaklings, sem bersýnilega bar keim af hefndaraðgerð.“ Hér hafi ekki verið gætt hins gullna meðalvegar, sem gilda skuli um lögregluaðgerðir, að þær séu hófsamlegar og gangi ekki lengra en þörf krefur. Þær skuli einkennast af fyllstu hlutlægni og réttsýni, bæði gagnvart sakborningum og vitnum. Jónatan bendir á hæpinn sakfellingargrundvöll í sinni álitsgerð og að sönnun hljóti að vera óhugsandi í veigamiklum atriðum gegn rökstuddum skýringum sakborninga og skjalfestum sönnunargögnum. Jónatan dregur fram margháttaða annmarka á rannsóknarferlinu og rýra eftirtekju rannsóknarinnar að því er sakarefni varðar. Þrátt fyrir að Jónatan telji í álitsgerð sinni mjög litlar líkur á sakfellingu telji hann miklar líkur til þess, að blásið verði til umfangsmikillar málssóknar við birtingu ákæru af hálfu RLS. Því valdi einkum þrennt: A) Samkrull lögreglu og ákæruvalds. Sami einstaklingur taki ákvarðanir um rannsóknaraðgerðir og málshöfðun. Ákæruvaldið sé því gegnsýrt af einhliða rannsóknarsjónarmiðum en nauðsynlegt endurmat sakarefna fari ekki fram. B) Langt rannsóknarferli muni leiða til þess að ákæran mótist af tímaþáttum og sýndarárangri. C) Allt rannsóknarferlið bendir til óvenjumikils ákafa og hörku RLS að ná „árangri“ í málinu og talsvert hafi vottað fyrir öfugsnúinni afstöðu RLS til grundvallarreglnanna um sönnunarbyrði ákæruvalds og um sakleysi grunaðs manns uns sekt hans er sönnuð. Aðrir, og þar á meðal undirritaður, hafa tilgreint eftirtalda misbresti á framkvæmd rannsóknarinnar: A) Tafir og hægagang sem valdið hefur öllum hlutaðeigandi ómældu tjóni og óþægindum. B) Óvissu um hvað undirrituðum og öðrum sé raunverulega gefið gefið að sök eða hvernig ákveðnar athafnir geta fallið undir alvarlegar ásakanir RLS. Þetta atriði hefur nú m.a. leitt til frávísunar málsins frá Héraðsdómi Reykjavíkur. C) Sífellt ný og ný sakarefni voru tínd upp úr gögnum félagsins og engar upplýsingar gefnar á rannsóknartímanum um það hvaða ásakanir yrðu bornar fram á hendur sakborningum. Mánuðum og árum saman mátti ég þola að frétta útí bæ af yfirheyrslum yfir einstaklingum um sakarefni, sem ekki voru kynnt mér fyrr en örfáum dögum fyrir útgáfu ákærunnar. Nú kemur Arnar Jensson fram og lýsir því yfir að fyllstu fagmennsku hafi verið gætt og lýsir sjálfum sér og öðrum starfsmönnum embættisins sem „heiðarlegum“ fagmönnum. Í ljósi reynslu minnar verð ég að mótmæla slíkum ummælum Arnars. Auk framangreindrar atriða má í þessu sambandi benda á eftirfarandi: -RLS ákvað að gera innrás í höfuðstöðvar Baugs á grundvelli þriggja daga yfirheyrslu yfir einu vitni og skjala, en strax í upphafi kom í ljós að RLS hafði ekki áttað sig á grundvallaratriðum um eðli þessara gagna. Þeir virtust þannig ekki þekkja muninn á debet og kredit. Er þetta fagmennska? -RLS horfði aldrei til gagna sem sakborningar, Baugur Group, lögmenn eða endurskoðendur lögðu fram, tóku ekki ekki mark á skýringum þeirra, jafnvel þótt þær væru trúverðugar og studdar skjalfestum gögnum. Ber þetta vott um fagmennsku? -Dæmi eru um að rannsóknarmenn RLS báru villandi upplýsingar milli vitna og sakborninga og reyndu þannig að hafa áhrif á framburð þeirra. Ber það vott um heiðarleika? -Ítrekað kom fram að rannsóknarmenn kunnu lítil skil á bókhaldi og viðskiptum, t.d. vaxtaútreikningi. Einnig er ljóst að endurskoðendur RLS höfðu ekki undir höndum öll skjöl sem Baugur Group hafði lagt fram hjá RLS. Svo virðist sem RLS hafi aðeins tínt til þau gögn sem studdu fyrirframgefna niðurstöðu. Ber þetta vott um heiðarleika eða fagmennsku? -Rannsóknin lá niðri um margra vikna skeið á meðan líkfundarmálið svokallaða á Neskaupsstað var til rannsóknar, en Arnar Jensson stjórnaði þeirri rannsókn sem kunngt er. Í framhaldi af því má spyrja í hverju hans sérþekking felist? Loks liggur fyrir að Héraðsdómur Reykjavíkur treystir sér ekki til að dæma á grundvelli ákæru RLS sem hvílir á þriggja ára rannsókn, sem kostað hefur ómælda fjármuni fyrir skattborgarana svo ekki sé minnst á þá raun og fjárhagslegt tjón sem sakborningar og Baugur Group hf. og eigendur þess hafa orðið fyrir. Ég óska engum þess að þola slíka meðferð. Ég tel að það beri vott um fífldirfsku af Arnari Jenssyni að koma fram með þeim hætti sem hann hefur gert, berja sér á brjóst og lýsa eigin ágæti og yfirmanna sinna. Hvar eru Haraldur og Jón H. B.? Leggja þeir ekki á foraðið? Þetta gerir Arnar þrátt fyrir að fyrir liggi framangreind álitsgerð Jónatans Þórmundssonar sem nú hefur aldeilis komið í ljós að átti svo sannarlega við rök að styðjast með vísan í niðurstöðu þriggja dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sama hver niðurstaða Hæstaréttar verður, það liggur fyrir að hjá RLS eru stunduð óvönduð og óheiðarleg vinnubrögð sem nú hitta þessa heiðursmenn fyrir og þeir kveinka sér undan. Það haushögg almenningsálitsins er miklu harðara og verra en það haushögg sem þeir hafa óttast frá þeim yfirvöldum í landinu sem raunverulega bera ábyrgð á rannsókninni.
Baugsmálið Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Fleiri fréttir Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Fjórðungur Hringvegarins lokaður Drengur skar mann í Strætó Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Sjá meira