Hlutu Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 4. október 2005 00:01
Tveir Bandaríkjamenn og Þjóðverji hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar í ljósfræðum, sem leitt hafa til mikilla umbóta á nákvæmum tímamælingum, staðsetningarkerfum og leisertækni - og í framtíðinni má búast við að þrívíddarsjónvörp verði byggð á tækni sem rannsóknir þeirra byggja á. Roy Glauber, John Hall og Theodor Hänsch deildu með sér verðlaununum, um 78 milljónum íslenskra króna. Það er ef til vill ekki auðvelt fyrir venjulega leikmenn að átta sig á rannsóknum þremenninganna sem lúta að ljósfræðum, hegðun mismunandi ljóstegunda og nákvæmum mælingum á tíðnisviði þess. Hänsch segir að rannsóknirnar snúast um gríðarlega nákvæmar mælingar á ljósi og efni, svo nákvæmar að það sé ekki hægt að ímynda sér það. Hann segir að hægt sé að tilgreina lit og tíðni ljóss með 14-16 aukastöfum. Almenningur nýtur hins vegar góðs af niðurstöðunum því þær eiga til dæmis þátt í miklum umbótum sem hafa orðið á staðsetningarkerfum eins og GPS- og leysitækni og þær munu einnig geta bætt siglingatækni í geimnum sem og fjarskipti á jörðu niðri. Hänsch sjálfur segir þrívíddarsjónvarp einnig vera möguleika leiddan af ljósrannsóknum þremenninganna, en hann þurfi að þróa frekar.
Erlent Fréttir Nóbelsverðlaun Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Demókratar vinna sigur í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Sjá meira