Réðust á skrifstofu ráðherra 3. júlí 2006 06:00 Ehud Olmert Forsætisráðherra Ísraels var myrkur í máli á fundi á sunnudag.
Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels þrýsti enn harðar á Palestínumenn í gær og skipaði Ísraelsher að gera allt sem hægt er til að frelsa ísraelska hermanninn sem hefur verið í haldi Palestínumanna. Ísraelar gerðu flugskeytaárás á skrifstofu forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, í gær en enginn særðist. Tvö flugskeyti voru send á skrifstofurnar klukkan 1.45 að staðartíma og því enginn innanhúss. Þeir hafa ráðist á tákn palestínsku þjóðarinnar, sagði Ismail Haniyeh forsætisráðherra Palestínu en ísraelskur ráðherra sagði að árásin hefði átt að vera alvarleg viðvörun til stjórn Hamas. Mennirnir sem hafa hermanninn í haldi krefjast þess að hundruðum fanga í ísraelskum fangelsum verði sleppt í staðinn fyrir upplýsingar um líðan hermannsins. Þetta eru erfiðir dagar fyrir Ísrael, en við ætlum ekki að taka þátt í einhvers konar mútum, sagði Olmert í gær. Mannræningjarnir eru orðaðir við Hamas en Ismail Haniyeh sagði að Hamas hefði engin tengsl við þá. Egyptar hafa blandað sér í gíslamálið og reynt að koma á samkomulagi um frelsun hermannsins og fengu þeir Sýrlendinga til liðs við sig til að þrýsta á Hamas. Á meðan halda bardagarnir á Gaza áfram. Herflugvélar Ísraela skutu á barnaskóla á svæðinu. Einn lést og annar særðist, en Ísraelar héldu því fram að mennirnir sem létust væru að skipuleggja hryðuverk gegn Ísrael.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira