Trúa mýtu um meyjarhaftið 12. ágúst 2006 07:30 Unglingsstúlkur Líklegt er að þessar stúlkur þekki ekki sannleikann um meyjarhaftið, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn. MYND/nordicphotos/getty images
Meirihluti sænskra unglinga trúir enn bábiljum um meyjarhaftið, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn sem gerð var við háskólann í Umeå, þar sem tvö hundruð framhaldsskólanemar voru spurðir: „Hvað er meyjarhaftið?“. „Langflestir trúa að það sé haft sem rifnar við fyrstu kynmök, og þá blæði og að það sé sárt,“ sagði Carola Eriksson, önnur tveggja sérfræðinga sem stóðu að rannsókninni. Sannleikurinn er hins vegar sá að meyjarhaftið er ekki haft, heldur slímhimna sem teygist með aldrinum. „Það blæðir ekki hjá áttatíu prósentum (kvenna) við fyrstu samfarir. Kringumstæðurnar valda blæðingum frá þeim fáu sem blæðir, þar sem máli skiptir hvort maður vill samfarirnar eða ekki, hvort maður er nægilega örvaður, hvort maður er taugaóstyrkur og hvort maður er búinn að taka út kynþroskann. Þetta hefur ekki með neitt haft sem rifnar að gera,“ sagði Eriksson. Hún bætti við að mýtan um meyjarhaftið væri frá þeim tíma þegar ungar telpur voru giftar fullorðnum mönnum, og þá var ekki spurt um langanir stúlkunnar á brúðkaupsnóttina. Fjallað var um rannsóknina á fréttavef sænska blaðsins Dagens Nyheter.
Erlent Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Sjá meira