Olía lækkar í verði 16. ágúst 2006 16:33 Hráolía lækkaði í verði á helstu mörkuðum í dag. Mynd/AP
Hráolíuverð lækkaði nokkuð á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna frá bandaríska orkumálaráðuneytinu þess efnis að þótt olíubirgðir hefðu dregist saman á milli vikna þá væru þær nokkuð yfir meðallagi. Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 60 sent í rafrænum viðskiptum í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum og fór í 72,45 dali á tunnu um miðjan dag. Verð á Norðursjávarolíu, sem afhent verður í október, lækkaði hins vegar um 77 sent og fór í 73 dali á tunnu. Þá lækkaði verð á Norðursjávarolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, um 80 sent í dag og fór í 73 dali á tunnu. Olíuverð fór hæst í 78,40 dali á tunnu um miðjan síðasta mánuð með annars vegna innrásar Ísraelshers í suðurhluta Líbanon og í kjölfar þess að olíufélagið BP varð að hætta olíuvinnslu í Prudhoeflóa í Alaska tímabundið eftir að leki kom upp í olíuleiðslum fyrirtækisins. Verðið hefur lækkað ört í þessari viku, ekki síst vegna vopnahlés Ísraelshers og Hezbollah-samtakanna, sem tók gildi á mánudag og vegna þess að BP hóf olíuvinnslu að nýju í Alaska.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira