Skoða að sameina Tesla og SpaceX Samúel Karl Ólason skrifar 21. október 2026 07:50 Elon Musk telur það góða hugmynd að sameina SpaceX og Tesla en segir óljóst hvort af því verði. AP/Julia Demaree Nikhinson Elon Musk, auðugasti maður heims, segir til skoðunar að sameina tvö þekktustu fyrirtæki hans, bíla- og vélmennafyrirtækið Tesla og geimferða-, gervigreindar- og internetfyrirtækið SpaceX. Bæði fyrirtæki hafa stofnað sérstakar nefndir sem hafa það hlutverk að kanna hvað hægt væri að græða á slíkri sameiningu.
Sú vinna er þó enn á frumstigi og Musk sagði í gær, þegar hann var að ræða við hluthafa SpaceX, að svo gæti farið að niðurstaðan yrði að fyrirtækin yrðu ekki sameinuð. Musk, sem er forstjóri beggja fyrirtækja, sagði að sér þætti það þó góð hugmynd. Eins og segir í grein Wall Street Journal hafa greinendur um nokkuð skeið velt fyrir sér hvort sameining yrði raunin. Slík myndi setja stærsta geimferðafyrirtæki heims og annan stærsta rafmagnsbílaframleiðanda heims undir sama þak, á sama tíma og Musk leggur meiri áherslu á gervigreind í báðum fyrirtækjum. Hann á sömuleiðis stóra hluti í báðum fyrirtækjum og myndi líklega hafa stjórn á sameinuðu félagi. Tesla er metið á um 1,5 billjónir dala (tólf núll) og SpaceX á um tvær billjónir (um 243 billjónir króna). Sjá einnig: Sýndu fljúgandi Roadster SpaceX birti ársfjórðungsuppgjör þar sem fram kom að tekjur jukust um rúmlega 160 prósent á milli ára, sem var töluvert umfram væntingar greinenda, og að fyrirtækið hefði hagnast um 4,4 milljarða dala (535 milljarða króna). Q3 2026 highlights: - Delivered revenue of $14.6 billion, up 161% year-over-year - Successfully launched our first revenue-generating Starship mission, delivering 26 Starlink V3 satellites to our broadband constellation, representing approximately 10x the downlink capacity added by a Falcon 9 Starlink launch - Added $6.7 billion of incremental Super Intelligence solutions and infrastructure revenue year-over-year, driven by cloud services agreements, the acquisition of Cursor, and our growing SI models and software applications, including @Grok @Bot - Delivered year-over-year revenue growth of 69% and income from operations growth of 99% for the Connectivity segment, supported by strong momentum in enterprise and government adoption, and continued @Starlink consumer subscriber growth - Continued to scale nameplate compute, reaching 1.7 GW as of September 30, 2026— SpaceX (@SpaceX) October 20, 2026 SpaceX og Tesla vinna þegar saman á ýmsum sviðum og eru til að mynda að vinna saman að framleiðslu örflagna í fyrirtæki sem heitir Terafab. Fyrstu flögurnar eiga að líta dagsins ljós í maí eða júní á næsta ári, samkvæmt því sem Musk sagði í gær. Samkvæmt Reuters er stór hluti tekna SpaceX til kominn vegna tekna af því að leigja út gagnaver til fyrirtækja eins og Anthropic og Google. Uppgjörið þykir sterklega gefa til kynna að fjárfesting SpaceX í gagnaverum og gervigreind sé að skila hagnaði, þrátt fyrir að kostnaðurinn sé mikill. Eins og staðan er nú segir í frétt Reuters að útlitið sé að skýjaþjónusta spili stærri rullu í starfsemi fyrirtækisins en þróun eigin gervigreindar. Starlink-gervihnattanetið hefur lengi verið kjarnastarfsemi SpaceX og framtíðaráætlanir forsvarsmanna fyrirtækisins velta enn að miklu leyti á því að þróun Starship-geimfarsins heppnist. Sú þróun hefur dregist verulega á undanförnum árum. Sjá einnig: Starship á sporbraut í fyrsta sinn Um 13,6 milljónir manna í heiminum eru áskrifendur að þjónustu Starlink, sem er einnig umfram spár greinenda. Sá vöxtur hefur þó kostað sitt, þar sem hagnaður af hverjum notanda hefur lækkað úr 99 dölum á mánuði árið 2023 í 69 dali á þriðja fjórðungi þessa árs.
Elon Musk SpaceX Tesla Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira