Engin breyting á olíuframleiðslu 8. september 2006 11:17 Olíuvinnslustöð í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Sérfræðingar segja ekki líkur á að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, geri miklar breytingar á olíuframleiðslu sinni þrátt fyrir að hætta sé á að hátt olíuverð geti dregið úr hagvexti. OPEC fundar um málið í næstu viku. Verð á olíu fór hæst í rúma 78 dali á tunnu um miðjan júlí og hafði olíuverð aldrei verið hærra. Verðið hefur lækkað talsvert síðan og stendur nú í tæpum 67 dölum á tunnu en slíkt verð hefur ekki sést síðan í byrjun apríl. Fréttastofa Associated Press (AP) hefur eftir nokkrum lykilmönnum innan OPEC að þeir vilji sjá olíuverð nálægt 65 dölum á tunnu. Aðrir segja verðið enn of hátt og vilji þeir sjá það nær 50 dölum á tunnu en slíkt geti gerst á næsta ári. Þegar það nái því marki muni OPEC taka ákvarðanir um næstu skref, að mati lykilmanna hjá OPEC.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira