Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2026 13:03 Olíuflutningaskip undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Tillaga Ómanna er studd af ráðamönnum ríkja við Persaflóa. AP/Kamran Jebreili Ráðamenn í Óman hafa kynnt tillögu að framtíðarstjórn Hormússunds fyrir klerkastjórninni í Íran. Tillaga þessi er studd af leiðtogum annarra ríkja við Persaflóa og felur meðal annars í sér valfrjáls gjöld fyrir að sigla um sundið.
Verulega hefur dregið úr siglingum um sundið á undanförnum mánuðum vegna stríðs Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum. Þegar stríðið hófst gerðu Íranir árásir á skip á sundinu, komu þar fyrir tundurtuflum og lýstu því yfir að sundinu væri lokað. Hins vegar væri hægt að komast þar í gegn ef klerkastjórnin fengi toll. Þetta hefur haft gífurleg áhrif á olíumarkaði um heiminn allan, þar sem um fimmtungur allrar olíu heimsins og gífurlega mikið jarðgas var flutt um Hormússund fyrir stríðið. Siglingum um sundið fjölgaði aftur þegar samið var um vopnahlé en það entist tiltölulega stutt. Bandaríkjamenn hófu aftur árásir á Íran og Íranir gerðu árásir á skip og nágrannaríki sín. Hútar í Jemen hafa þar að auki takmarkað skipasiglingar um Rauðahaf. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stöðvaði um helgina árásir á Íran og sagðist vilja gefa viðræðum svigrúm. Hann hefur þó ítrekað sagt að virki þær ekki, muni árásirnar hefjast að nýju. Íranir hafa lýst því yfir að þeir vilji hafa stjórn á Hormússundi, með yfirvöldum í Óman, sem liggur hinum megin við sundið, og rukka tolla fyrir siglingar þar um. Fyrr í þessum mánuði fóru Bandaríkjamenn að fylgja olíuflutningaskipum gegnum sundið með því að sigla með ströndinni Óman-megin. Það hafa ráðamenn í Íran verið ósáttir við. Það hafa aðrir ekki tekið í mál, þar sem engir slíkir tollar voru fyrir stríðið og þar að auki yrðu þeir ólöglegir samkvæmt alþjóðasáttmálum um siglingar. Slík tollalagning myndi mögulega opna á það að önnur ríki setji tolla á aðrar mikilvægar skipaleiðir víða um heim. Slíkt gæti haft mikil áhrif á skipaflutninga um heiminn allan. Samkvæmt heimildarmönnum Reuters felur tillaga Ómana í sér að Íranir myndu ekki hafa fulla stjórn á Hormússundi en eigendur skipa gætu valið að greiða Írönum og Ómönum þegar skipunum er siglt þar um. Kerfið yrði svipað því sem notast er við hvað varðar Malacca-sund. Yfirvöld í Indónesíu, Malasíu og Singapúr biðja útgerðir um að setja peninga í sjóði sem eiga að vera notaðir til að stýra umferð um sundið, vernda umhverfi þess og fjármagna björgunaraðgerðir. Líkt við kolefnisjöfnun Einn vestrænn embættismaður líkti tillögunni við valfrjálsa kolefnisjöfnun. Það þegar farþegar flugvéla velja að greiða aukagjald með flugmiða sínum. Olíufyrirtæki og ríkisstjórnir ríkja við Persaflóa gætu einnig sett peninga í sjóði fyrir Hormússund. Embættismenn frá Óman ferðuðust til Tehran um helgina og kynntu tillöguna fyrir ráðamönnum þar, samkvæmt Wall Street Journal. Ekkert svar hafði borist í gærkvöldi. Heimildarmenn miðilsins segja að enn beri mikið á milli í viðræðum Írana og Ómana en árangur hafi náðst. Viðræðunum er ekki ætlað að binda enda á stríð Bandaríkjanna og Írana, en Trump hefur sagt að í grunninn snúist það um að meina Írönum að koma upp kjarnorkuvopnum. Hins vegar er vonast til þess að með því að leysa úr deilum um siglingar um Hormússund yrði það stórt skref í átt að friði.
Íran Óman Bandaríkin Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira