Lufthansa kaupir ekki í SAS 27. september 2006 00:01
Thomas Jachnow, talsmaður þýska flugfélagsins Lufthansa, og talsmaður SAS í Svíþjóð, vísuðu báðir þeim orðrómi á bug í byrjun vikunnar að Lufthansa ætlaði að kaupa allt að helmingshlut í norræna flugfélaginu og hugsanlega gera yfirtökutilboð í það. Jachnow sagði í samtali við danska dagblaðið Börsen þetta vera vangaveltur hjá blaðamanni norska viðskiptablaðinu Finansavisen. Blaðið sagði í síðustu viku að Wolfgang Mayrhuber, forstjóri Lufthansa, hefði staðfest í samtali við blaðið að félagið hefði hug á að kaupa allt að helming hlutafjár í SAS. Varð þetta til þess að gengi hlutabréfa í SAS hækkaði nokkuð á mörkuðum á Norðurlöndunum. Jachnow sagði hins vegar blaðamann Finansavisen fara villu vegar því hann hefði spurt Mayrhuber hvort Lufthansa hefði í hyggju að gera yfirtökutilboð í SASA en Mayrhuber hefði neitað að tjá sig um málið. Jachnow vildi þrátt fyrir þetta ekki segja til um það við Börsen hvort einhver sannleikskorn lægju til grundvallar orðróminum eður ei.
Viðskipti Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira