Wal-Mart braut á starfsfólki sínu 18. október 2006 06:15 mótmæli við wal-mart Verslanakeðjunni Wal-Mart hefur lengi verið legið á hálsi fyrir að fara illa með starfsfólk sitt. MYND/AFP
Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart, sem er ein sú stærsta í heimi, var í síðustu viku dæmd til að greiða fyrrverandi starfsfólki sínu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum 78 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Starfsfólkið var þvingað til að vinna í frítíma sínum, svo sem í kaffi- og matarhléum, án þess að fá greitt fyrir það. Í dómsniðurstöðu sagði að fyrirtækið hefði brotið ríkislög með því að neita að greiða starfsfólkinu fyrir umframvinnuna. Það voru hvorki fleiri né færri en 187.000 fyrrverandi starfsmenn Wal-Mart, sem unnu hjá fyrirtækinu frá því í mars árið 1997 til maí á þessu ári sem kærðu fyrirtækið. Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins, sem fór fyrir þessu samstarfsfólki sínu í málinu, sagði fyrir réttinum að hún hefði unnið í matar- og kaffihléum og jafnvel eftir lokunartíma án þess að fá nokkuð greitt fyrir. Svipað mál kom upp í Kaliforníu í Bandaríkjunum í desember í fyrra en þá var Wal-Mart dæmt til að greiða 116.000 fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins 172 milljónir dala, jafnvirði tæpra 11,8 milljarða íslenskra króna, í bætur fyrir að neita þeim um matarhlé.
Viðskipti Mest lesið Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira