Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Suður-afríska lögreglan hefur hafið rannsókn eftir að HM-leikmaðurinn Jayden Adams fannst látinn í húsi í Höfðaborg um helgina. Fótbolti 13.7.2026 20:32
Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Stærsta stjarna norska karlalandsliðsins sást hvergi þegar hetjurnar voru hylltar af mannhafi á Hallartorginu í Osló í kvöld. Fótbolti 13.7.2026 20:23
Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Slaven Bilic hefur verið ráðinn þjálfari króatíska fótboltalandsliðsins. Þetta er í annað sinn sem hann stýrir því. Fótbolti 13.7.2026 19:30
Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Gianni Infantino, forseti FIFA, er spenntur fyrir því að fjölga þátttökuliðum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í 64 lið. Hann segir að HM þurfi að vera fyrir allan heiminn. Fótbolti 13. júlí 2026 09:30
Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Enska landsliðið hefur flogið mest af öllum liðum á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Aukin ferðalög fylgja því að halda mótið í þremur löndum. Fótbolti 13. júlí 2026 08:32
Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Stale Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, er stoltur af frammistöðu síns liðs á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Hann getur nú litið til baka á sumarið með bros á vör. Fótbolti 13. júlí 2026 08:02
Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Lena Selnes, unnusta norska landsliðsframherjans Alexanders Sörloth, hefur nú birt hluta af þeim hatursfullu skilaboðum sem hún fékk send eftir að Noregur féll úr leik í 8-liða úrslitum á HM í fótbolta. Fótbolti 13. júlí 2026 07:02
Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fjögur efstu lið heimslista FIFA standa nú eftir á HM í fótbolta og er þetta í fyrsta sinn sem að akkúrat fjögur efstu lið listans standa eftir í undanúrslitum mótsins. Fótbolti 12. júlí 2026 23:00
Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Marcelo Bielsa hætti strax sem landsliðsþjálfari Úrúgvæ og kenndi sjálfum sér um eftir að liðið féll úr leik á HM karla í fótbolta. Nú er arftaki hans fundinn. Fótbolti 12. júlí 2026 22:32
Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Breska blaðið The Times fullyrðir að af 18 meðlimum aganefndar FIFA hafi aðeins formaðurinn komið að ákvörðuninni um að gera Folarin Balogun kleift að spila áfram á HM, þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í 32-liða úrslitunum. Fótbolti 12. júlí 2026 21:34
Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Eftir að hafa fallið úr leik í 32-liða úrslitum á HM í fótbolta, með sárgrætilegu 3-2 tapi gegn Belgum í framlengdum leik, hefur allt þjálfarateymi Senegals nú verið rekið. Fótbolti 12. júlí 2026 18:46
„Mikil saga og mikill sársauki“ Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Fótbolti 12. júlí 2026 15:16
Sýður á Svisslendingum Svisslendingar eru allt annað en ánægðir eftir að hafa fallið úr leik fyrir Argentínu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. Rautt spjald Breel Embolo skilur eftir óbragði í munni þeirra. Fótbolti 12. júlí 2026 14:32
Haaland eldri hraunar yfir dómarana Alf-Inge Haaland, faðir norsku stórstjörnunnar Erling Braut Haaland, lét dómarann Clement Turpin og samstarfsfélaga hans í 2-1 tapi Noregs fyrir Englandi á HM í gær heyra það á samfélagsmiðlum eftir leik. Fótbolti 12. júlí 2026 13:45
FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Það virðist flestum ljóst að boltinn breytti um stefnu af myndavélakapli í aðdraganda fyrra marks Englands við Noreg í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. FIFA segir gögnin sýna annað. Fótbolti 12. júlí 2026 10:47
Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Ekki er hallað á neinn þegar fullyrt er að Jude Bellingham sé hetja gærdagsins á HM karla í fótbolta. Tvö mörk hans skutu Englendingum áfram í undanúrslit í fjórða sinn. Fótbolti 12. júlí 2026 10:00
Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Tíu Svisslendingar börðust til síðasta blóðdropa en urðu að játa sig sigraða gegn heimsmeisturum Argentínu í nótt, í framlengdum lokaleik 8-liða úrslita á HM í fótbolta. Fótbolti 12. júlí 2026 00:00
Bellingham sendi sára Norðmenn heim Englendingar eru komnir í undanúrslit á HM í Norður-Ameríku eftir 2-1 sigur gegn Norðmönnum í bráðfjörugum leik í 8-liða úrslitum. Norðmenn hafa aldrei komist svo langt á HM og geta haldið stoltir heim á leið en þeir voru reiðir yfir ákveðnum dómaraákvörðunum í leiknum. Fótbolti 11. júlí 2026 23:15
Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Norskir sparkspekingar spara ekki stóru orðin eftir að myndband virðist sýna að boltinn hafi farið í vír fyrir eina af sjónvarpsmyndavélunum á vellinum, í aðdraganda þess að Jude Bellingham jafnaði metin fyrir England gegn Noregi í kvöld. Fótbolti 11. júlí 2026 22:57
Hissa á útspili Haalands Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segist lítið botna í ummælum Erlings Haaland í aðdraganda þess að enska liðið tekst á við Haaland og félaga í 8-liða úrslitum HM í fótbolta í kvöld. Fótbolti 11. júlí 2026 19:01
„Frakkar eiga að óttast okkur“ Lamine Yamal, leikmaður spænska landsliðsins, segir Frakka eiga að óttast þá spænsku fyrir leik liðanna í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Spánn tryggði sæti sitt með sigri á Belgum í gær. Fótbolti 11. júlí 2026 16:47
Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Þrátt fyrir slakt gengi á punktinum að undanförnu mun Lionel Messi halda áfram að taka vítaspyrnur Argentínu nema hann ákveði sjálfur að gera það ekki, samkvæmt Lionel Scaloni, þjálfara Argentínu. Fótbolti 11. júlí 2026 15:16
Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Jürgen Klopp hefur komist að samkomulagi við þýska knattspyrnusambandið, DFB, um að taka við karlalandsliði Þýskalands í fótbolta. Fótbolti 11. júlí 2026 14:30
Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Suður-afríski miðjumaðurinn Jayden Adams er látinn aðeins 25 ára að aldri, örfáum vikum eftir að hafa spilað með landsliði sínu á HM karla í fótbolta. Fótbolti 11. júlí 2026 13:46