Sport

McGregor entist að­eins í 69 sekúndur

Valur Páll Eiríksson skrifar
McGregor virðist hafa slitið krossband strax í byrjun bardagans.
McGregor virðist hafa slitið krossband strax í byrjun bardagans. Ian Maule/Getty Images

Endurkoma Conors McGregors í átthirninginn í UFC var mörgum mikil vonbrigði. Hann meiddist þegar aðeins rúm mínúta var liðin á bardaga næturinnar.

McGregor hafði ekki barist í fimm ár þegar hann sneri aftur í nótt og mætti Max Holloway í Las Vegas. Aðeins ein mínúta og níu sekúndur voru liðnar þegar McGregor féll til jarðar vegna hnémeiðsla.

Hinn 37 ára gamli McGregor flaug yfir hringinn og reyndi spark með vinstri fæti rétt þegar bardaginn var að hefjast en lenti illa á hægra hné. McGregor reyndi tvær atlögur að Holloway í kjölfarið en þá varð strax ljóst að hann gæti ekki haldið áfram.

Fimm lotu bardaganum sem til stóð lauk því snemma og Holloway dæmdur sigur.

„Það er erfitt að koma til baka eftir fimm ár í burtu frá íþróttinni,“ segir Dana White, forseti UFC. „Við gerum ráð fyrir að um sé að ræða slitið krossband. Það er það sem ég hélt þegar ég sá þetta og það er það sem læknarnir halda einnig.“

Holloway fagnaði sigri en hefur verið sáttari eftir bardaga.

„Hvað get ég sagt? Ég gerði hann veikan í hnjánum, virðist vera,“ sagði Holloway í nótt.

„Það var svo mikil spenna fyrir þessu. Við þurfum að endurtaka leikinn. Að þetta endi svona er ömurlegt.“

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×