Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Andri Broddason skrifar 8. september 2026 12:47 Hrafnhildur Ása og Taylor Marie HAmlett eru líklegastar til að verða markahæstar í Bestu deild kvenna. Vísir/samsett Lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu kláraðist í gær og er hörð barátta um Gullskóinn. Baráttan er þó ekki sanngjörn þar sem leikmenn í neðri hluta deildarinnar spila færri leiki en liðin í efri hlutanum og fá þá sumir leikmenn fleiri leiki til að skora mörk.
Bestu Mörkin voru á dagskrá í gær þar sem Jóhann Fjalar Skaptason fékk sérfræðingana Mist Rúnarsdóttur og Katrínu Ásbjörnsdóttur með sér í sett. Þar ræddu sérfræðingarnir um baráttuna um markahæstu leikmenn deildarinnar. Tíu lið eru í Bestu deild kvenna og er henni ekki skipt jafnt til þess að forðast það að lið sitji hjá. Því fara sex lið upp í efri hluta deildarinnar og aðeins fjögur lið í neðri hluta deildarinnar. Það gerir það að verkum að liðin í neðri hlutanum fá aðeins að spila þrjá leiki í viðbót en liðin í efri hlutanum spila sex leiki í viðbót. Klippa: Bestu mörkin: Hver fær Gullskóinn „Þetta er svo pirrandi og það er nú ekki oft sem við sjáum leikmenn í neðri hlutanum berjast um þennan titil,“ sagði Katrín um stöðu Taylor Marie og Öldu Ólafsdóttur í keppninni um Gullskóinn. Þær eru báðar í hópi fimm markahæstu leikmanna tímabilsins en spila báðar með Fram sem er í neðri hluta deildarinnar og spila aðeins þrjá leiki í viðbót. Á síðasta tímabili í Bestu deild karla bætti Benóný Breki Andrésson markamet Bestu deildar karla þegar hann lék með KR í neðri hlutanum. Til þess að lið í efri og neðri hluta deildarinnar fái jafnan möguleika á að bæta markametið ætti samkvæmt Katrínu að fjölga liðum og hafa þá sex lið í bæði efri og neðri hluta deildarinnar. Hrafnhildur Ása líklegust vegna tveggja aukaleikja Sérfræðingarnir voru báðir spurðir um hver myndi fá Gullskóinn og voru bæði Mist og Katrín sammála um að Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir myndi verða markahæst. „Ég tippaði á Hrafnhildi Ásu fyrir mót og ég ætla að halda mig við það út af því að hún fær fleiri leiki. Annars myndi ég segja að Taylor [Marie] myndi verða markahæst ef hún fengi fimm leiki,“ sagði Mist. Ída Marín Hermannsdóttir er enn markahæst í deildinni með þrettán mörk en hún er farin til Hammarby IF í Svíþjóð og mun ekki spila meira. Allison Lowrey hjá ÍBV, Hrafnhildur Ása hjá Breiðablik og Taylor Marie hjá Fram eru allar jafnar með ellefu mörk. Umræðuna má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Bestu mörkin Íslenski boltinn Besta deild kvenna Breiðablik Fram Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira