Íslenski boltinn

„Neyði menn ekki til að vera hérna“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rúnar Páll hefur rætt málin við Emil Atlason sem ræður nú sínum ráðum um framtíðina.
Rúnar Páll hefur rætt málin við Emil Atlason sem ræður nú sínum ráðum um framtíðina. Samsett/Vísir

Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta, hefur heyrt hljóðið í framherjanum Emil Atlasyni sem er að klára samning sinn hjá Garðabæjarfélaginu.

Samningur Emils við Stjörnuna rennur út nú í lok tímabils og virðist óákveðið hvað verði með framtíð hans. Emil lýsti yfir óhamingju sinni með ákvörðun stjórnar í Garðabænum að segja Jökli Elísabetarsyni upp sem þjálfara liðsins á miðju sumri og hefur ekki skrifað undir nýjan samning.

Rúnar Páll Sigmundsson tók nýverið við Stjörnuliðinu á ný og hefur þegar heyrt í Emil vegna möguleikans á því að hann haldi kyrru fyrir í Garðabæ.

„Ég er búinn að tala við Emil varðandi það. Hann þarf bara að taka ákvörðun um það sjálfur hvað hann vill gera. Ég er ekki að neyða menn til að vera hérna. Hann verður að ákveða það og þannig er það bara,“ sagði Rúnar Páll í samtali við íþróttadeild Vísis í gær.

Emil er 33 ára gamall framherji sem hefur verið hjá Stjörnunni frá árinu 2020. Hann skoraði fimm mörk fyrir félagið í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×