Enski boltinn

Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt

Andri Broddason skrifar
Adam Murphy og félagar ærðust af fögnuði þegar úrslitin réðust.
Adam Murphy og félagar ærðust af fögnuði þegar úrslitin réðust. Getty/Lewis Storey

Ótrúleg úrslit urðu í gær þegar enska D-deildarliðið Fleetwood Town sló Englandsmeistarana Arsenal út í 8-liða úrslitum deildarbikarsins. Leikurinn endaði jafn 1-1 en heimamenn í Fleetwood unnu í vítaspyrnukeppni.

Leikurinn var skrautlegur og komst Fleetwood í forystu í fyrri hálfleik eftir mark frá Aaron Loupalo-Bi. Heimamenn voru með forystuna í hálfleik en þegar leið á seinni hálfleikinn náði Arsenal að jafna metin.

Það gekk þó erfiðlega fyrir Arsenal að koma inn sigurmarkinu og þegar aðeins fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk Max Dowman, leikmaður Arsenal, að líta rauða spjaldið.

Þrátt fyrir að vera manni fleiri var gríðarlegt afrek fyrir Fleetwood að komast í vítaspyrnukeppni gegn Englandsmeisturunum. Þar náði Fleetwood Town að skora úr öllum sínum vítaspyrnum en varamaðurinn Bruno Guimaraes tók fjórðu spyrnu Arsenal.

Jay Lynch, markmaður Fleetwood Town, varði spyrnuna og gat því Conor Haughey skotið Arsenal úr keppni sem er akkúrat það sem hann gerði. Í viðtali við Sky Sports eftir leik var talað við Matt Lawlor, þjálfara Fleetwood Town, þar sem hann sagði að liðið hefði ekkert æft vítaspyrnu á æfingu. Þrátt fyrir að hafa ekki æft vítaspyrnurnar þá virðist það vera leikmönnum liðsins í blóð borið.

Allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×