Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Andri Broddason skrifar 25. október 2026 13:32 Martröð Manchester United hélt áfram í dag þegar liðið tapaði fyrir Bournemouth á heimavelli. Martin Rickett/Getty Images Manchester United tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem heimamenn þurftu virkilega á góðum úrslitum að halda. Svo reyndist ekki vera og vann Bournemouth 3-0 sigur eftir skelfilega frammistöðu heimamanna. Bruno Fernandes var settur á bekkinn fyrir leik dagsins eftir gagnrýni hans á þjálfarateymið eftir stórt tap fyrir Como í Meistaradeildinni í vikunni. Margir stuðningsmenn Manchester United eru handvissir um að Michael Carrick, þjálfari liðsins, verði rekinn eftir leik dagsins. Rayan kom Bournemouth yfir eftir aukaspyrnu þar sem Ayden Heaven átti glannalega tæklingu og fékk gult spjald að launum. Hin tvö mörkin voru eftir klaufaleg mistök sem lýsir ástandi leikmanna. Rétt fyrir hálfleik þá rann Leny Yoro, varnarmaður Manchester United, með boltann og hleypti Bournemouth í dauðafæri. Í seinni hálfleik kom sending inn fyrir vörn Manchester United og ætlaði Senne Lammens í marki heimamanna að hreinsa frá. Hann misreiknaði þó boltann og gat Evanilson skorað í autt mark Manchester United og gulltryggt 3-0 sigur. Það virðist ómögulegt fyrir Manchester United að ná að spila vel og er liðið aðeins búið að vinna tvo leiki á tímabilinu. Eftir átta umferðir í ensku úrvalsdeildinni er liðið í sextánda sæti með sjö stig. Enski boltinn Fótbolti Manchester United AFC Bournemouth