Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, segir brjálæðiskast leikmanns síns Rodrigo Bentancur hafa verið nákvæmlega það sem liðið þurfti í leik við Manchester United í gær. Bentancur fékk rautt spjald en Tottenham bjargaði stigi þrátt fyrir að vera með tíu menn gegn ellefu. Enski boltinn 11.10.2026 11:31
Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn er loksins snúinn aftur eftir langt landsleikjahlé og var deildin ekki að valda vonbrigðum. Mikið var um mörk og dramatík í leikjum gærdagsins í hágæða skemmtun. Enski boltinn 11.10.2026 07:02
Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Manchester United tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik náði Manchester United forystunni í seinni hálfleik. Tottenham náði þó að jafna metin í uppbótartíma og endaði leikurinn með sanngjörnu 1-1 jafntefli. Enski boltinn 10.10.2026 16:00
Ætlaði aldrei til Manchester United Lewis Hall, bakvörður Newcastle United á Englandi, segir aldrei hafa verið spurning fyrir sig að skrifa undir nýjan samning frekar en að fara til Manchester United. Enski boltinn 22. september 2026 17:15
Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Gary Lineker, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta og núverandi sparkspekingur, fór hörðum orðum um Íslandsvininn Sir Jim Ratcliffe sem er einn af eigendum enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Enski boltinn 22. september 2026 11:17
„Mér finnst það ekki vandamál“ Michael Carrick, þjálfari Manchester United, hafnar því að slæmt form og líkamlegt ástand leikmanna liðsins orsaki verstu byrjun liðsins á tímabili síðan 2014. Liðið gerði jafntefli við Fulham í gær. Enski boltinn 21. september 2026 09:31
Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, segist hafa verið handviss um að dómararnir myndu ekki láta það gerast að Manchester United tapaði gegn hans mönnum, eftir mistökin sem gerð voru í síðasta leik United. Enski boltinn 21. september 2026 07:02
Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Manchester City festi sig í sessi á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool vann góðan útisigur gegn Bournemouth en Manchester United náði aðeins jafntefli við botnlið Fulham. Allt það helsta úr leikjum dagsins má sjá á Vísi. Enski boltinn 20. september 2026 21:38
Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Sparkspekingurinn Gary Neville talaði hreint út varðandi frammistöðu Manchester United í dag eftir að liðið var stálheppið að ná í 1-1 jafntefli við botnlið Fulham, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 20. september 2026 20:31
Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Fulham komst af botni ensku úrvalsdeildarinnar og var afar nálægt fyrsta sigrinum, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Manchester United í 5. umferð í dag. Enski boltinn 20. september 2026 15:01
Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Carl Rushworth, markvörður Coventry City, skráði sig í sögubækurnar í ensku úrvalsdeildinni þegar hann lagði upp mark í sigri liðsins á Nottingham Forest í gær. Enski boltinn 20. september 2026 11:01
JJ Gabriel mættur til Barcelona Leikmaðurinn ungi JJ Gabriel hefur mikið verið á milli tannanna á fólki eftir að hann tilkynnti að hann vildi fara frá Manchester United. Mikið hefur verið um hann rætt síðan þá en hann er nú staddur í Barcelona. Enski boltinn 18. september 2026 22:32
Flestir Íslendingar halda með Liverpool Samkvæmt könnun Maskínu halda flestir Íslendingar með Liverpool og það sem meira er þá eru flestir stuðningsmenn Liverpool fólk sem kýs Framsóknarflokkinn. Enski boltinn 18. september 2026 13:33
Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Manchester United, gerir alvarlegar athugasemdir við það hvernig fulltrúar ungstirnisins JJ Gabriel hafa hagað málum hans upp á síðkastið. Enski boltinn 17. september 2026 11:03
Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Fjórir leikir fóru fram í deildarbikarnum á Englandi þar sem nokkur stórlið mættust. Byrjun tímabilsins ætlar ekki að batna hjá Manchester United þegar liðið tók á móti Brighton. Enski boltinn 16. september 2026 21:03
Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Nokkur af stærstu liðum Evrópu hafa áhuga á að fá vonarstjörnu Manchester United, JJ Gabriel, til liðs við sig. Leikmaðurinn vill fara frá félaginu. Enski boltinn 16. september 2026 10:01
Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Einn efnilegasti leikmaður Man. Utd kom forráðamönnum félagsins í opna skjöldu í dag er hann óskaði eftir því að komast burt frá félaginu. Enski boltinn 15. september 2026 15:47
VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Myndbandsdómarar í Manchester-slag helgarinnar í enska fótboltanum fá ekki verkefni í deildinni næstu helgi eftir að hafa ranglega dæmt sigurmark Erlings Haaland gilt í 1-0 sigri City á United. Enski boltinn 14. september 2026 19:46
Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Hafþór Júlíus Björnsson, eða Fjallið, vakti mikla athygli á Old Trafford í gær þar sem hann fylgdist með nágrannaslag Manchester United og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 14. september 2026 12:47
Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Dómarasamtökin í ensku úrvalsdeildinni viðurkenna að það hafi verið mistök að láta sigurmark Erlings Haaland standa, í Manchester-slagnum á Old Trafford í gær. Allt það helsta úr leiknum má sjá á Vísi. Enski boltinn 14. september 2026 08:28
„Markið hefði ekki átt að standa“ Youri Tielemans lék sinn fyrsta Manchester-slag þegar Manchester United tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tielemans var svekktur eftir leikinn enda er hann ósammála rangstöðudómnum í marki leiksins. Enski boltinn 14. september 2026 07:00
Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Manchester United tók á móti Manchester City í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins sem er umdeilanlegt þar sem dómarinn dæmdi rangstöðu en ákvörðunin var tekin til baka. Nú eftir leikinn hefur talsmaður dómarasamtaka enskrar knattspyrnu sagt að ekki hafi farið rétt að. Enski boltinn 13. september 2026 21:24
Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar Hafliðason spjallaði við Erling Haaland eftir að hann skoraði sigurmarkið í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Haaland skoraði eina mark leiksins þegar Manchester City vann nágranna sína í Manchester United. Enski boltinn 13. september 2026 20:16
Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Hjörvar Hafliðason ræddi við goðsögnina Peter Schmeichel, sem spilaði bæði með Manchester City og Manchester United á sínum ferli, fyrir grannaslag liðanna á Old Trafford í dag. Enski boltinn 13. september 2026 15:50
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn