Enski boltinn

Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull

Andri Broddason skrifar
Erik ten Hag var hrifinn af Kobbie Mainoo um leið og hann sá hann spila
Erik ten Hag var hrifinn af Kobbie Mainoo um leið og hann sá hann spila Vísir/Samsett

Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, talar vel um ungstirnið Kobbie Mainoo. Hann vissi um leið og hann sá hann að þetta yrði gulldrengur Manchester United.

Í viðtali við The Athletic fer Erik ten Hag yfir tímana sína sem stjóri Manchester United. Þar rifjaði hann upp þegar hann sá 17 ára Mainoo æfa með unglingaliðinu og sá strax að hann væri með ótrúlega hæfileika.

Það var þó ekki verið að reyna á hann á æfingum hjá ungu strákunum og var því mikilvægt fyrir ten Hag að láta hann æfa með meistaraflokksliðinu. Þar var ákefðin meiri og virtist Mainoo læra mikið af því.

Í síðustu viku var Mainoo í viðtali við Clarence Seedorf hjá Amazon Prime þar sem hann hrósaði æfingum ten Hag. Hollenski þjálfarinn var ánægður með að heyra svona falleg orð frá einum af hans uppáhalds leikmönnum þegar hann var þjálfari Manchester United.

Fyrsti leikur Mainoo í ensku úrvalsdeildinni var gegn Everton þar sem Manchester United vann leikinn 3-0. Kobbie Mainoo var valinn maður leiksins og þá vissi ten Hag að Mainoo væri klár í meistaraflokksbolta.

Stærsti sigur Manchester United undir stjórn ten Hag var úrslitaleikur F.A. bikarsins árið 2024. Þar skoraði Mainoo sigurmarkið í 2-1 sigri gegn Manchester City og gerði Mainoo að ógleymanlegu nafni innan Manchester United.

Mainoo hefur mikið glímt við meiðsli á þessu tímabili og hefur aðeins náð að spila átta leiki á tímabilinu. Hann er ekki með liðinu sem mætir Como í Meistaradeildinni í kvöld en búist er við að hann snúi aftur til liðsins á næstu vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×