Enski boltinn

„Ég æfði tíu klukku­stundir á dag en enginn sá mig“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dejan Kulusevski er loksins kominn til baka og getur farið að hjálpa Tottenham inn á vellinum.  Liðið var við toppinn þegar hann meiddist en síðan hefur margt breyst.
Dejan Kulusevski er loksins kominn til baka og getur farið að hjálpa Tottenham inn á vellinum.  Liðið var við toppinn þegar hann meiddist en síðan hefur margt breyst. EPA/ADAM VAUGHAN

Endurkoma sænska framherjans Dejan Kulusevski inn á völlinn í gærkvöldi var ekki minni sigur en langþráður fyrsti sigur Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Meiðslamartröð þessa öfluga leikmanns var líka loksins á enda.

Kulusevski hafði ekki stigið inn á völlinn síðan í maí 2025: „Fyrir nokkrum mánuðum þurfti ég að segja mínum nánustu að kannski myndi þetta ekki ganga upp, en innst inni vissi ég alltaf að ég myndi hafa það,“ sagði Kulusevski eftir leikinn.

„Ég gafst aldrei upp.“ Dejan Kulusevski við blaðamann Gazzetta dello Sport en hann þurfti að bíða í 526 daga eftir umbuninni. Hann kom inn á sem varamaður í sigri á Coventry en á hliðarlínunni mátti sjá dóttur hans Leonie í Tottenham-treyju með númerinu 526 og áletruninni „Hetjan mín“ á bakinu. Þetta var mögnuð stund fyrir fjölskylduna.

Kulusevski er kominn aftur inn á völlinn eftir langa þrautagöngu í kjölfar meiðsla á hnéskel í hægra hné sem urðu til þess að hann missti af heilu tímabili og kostuðu hann heimsmeistaramótið sem hann hafði dreymt um með Svíþjóð.

Þetta var mjög flókið

„Endurkoman virtist nánast ómöguleg. Þetta var mjög flókið, en ég hafði á tilfinningunni að ég myndi spila fótbolta aftur. Ég þurfti bara að trúa því og það gerði ég.“ Leið Kulusevskis var ekki auðveld og enginn, allra síst Tottenham, bjóst við að hún yrði svona löng.

Dóttirin Leonie tók á móti föður sínum í sérstakri treyju í tilefni tímamótanna.na.@dejan.k10

Kulusevski, sem er nú 26 ára, hafði fyrir gærkvöldið síðast spilað 11. maí 2025, þegar hann lék 18 mínútur í úrvalsdeildinni gegn Crystal Palace áður en hann neyddist til að gefast upp.

Hnéskelin brotnaði

Það sem í fyrstu var kynnt sem högg á hægra hné reyndist vera brot á hnéskel og aðgerð með óvissum batatíma.

„Ég missti aldrei vonina, en stundum virtist þetta ómögulegt,“ sagði Kulusevski. „Fyrir aðeins nokkrum mánuðum þurfti ég að segja mínum nánustu að kannski myndi þetta ekki ganga upp, en innst inni vissi ég alltaf að ég myndi hafa það. Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig, og jafnvel þegar þetta virtist ómögulegt og allir voru að missa vonina gafst ég aldrei upp. Guð gaf mér styrk til að halda áfram, ég get ekki eignað mér allan heiðurinn af því sem ég gerði því ég gerði það ekki einn. Hann var með mér á hverjum degi,“ sagði Kulusevski.

„Ég naut mín virkilega“

„Nú er ég tilbúinn að spila fótbolta,“ sagði Kulusevski. „Ég naut mín, ég naut mín virkilega. Jafnvel þótt ég líti nú á mig sem aðra manneskju,“ sagði hann. „Ég er sami strákurinn sem vill bara spila fótbolta, en ég er aðeins klókari. Ímyndaðu þér stöðuna: allir gefast upp, en þú getur það ekki því fyrir þér er fótbolti eins og að anda. Og í tvö ár gat ég ekki andað. En ég átti samt fjölskyldu og liðsfélaga: ég mætti með bros á vör, reyndi alltaf að hvetja þá áfram, og til þess þarf mikla ást, mikið hugrekki og mikla sannfæringu.“

Kulusevski er ekki lengur í búningsklefa Tottenham bara til að hvetja liðsfélaga sína, heldur til að breyta gangi leikja. Hann andar á ný og sparkar í bolta á ný.

Annað andrúmsloft í búningsklefanum

„Hann og James Maddison eru öðruvísi leikmenn: þeir búa yfir hæfileikum, reynslu og persónuleika. Það ríkir annað andrúmsloft í búningsklefanum þegar þeir eru til staðar,“ sagði knattspyrnustjórinn Roberto De Zerbi.

„Hann er ótrúlegur knattspyrnustjóri, mér líkar mjög vel við hann og ég hlakka til að halda áfram að vinna með honum,“ sagði Kulusevski.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×