„Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2026 14:30 Snorri Steinn Guðjónsson er ánægður með að fá heimaleiki í janúar eftir allt saman, þó að mótherjinn sé mun lægra skrifaður en stefnt var að. vísir/Anton „Þetta eru auðvitað vinnubrögð sem við myndum aldrei temja okkur,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, um svikin loforð Egypta. Hann er ánægður með þá lausn sem hann fann varðandi undirbúninginn fyrir HM í Þýskalandi.
Í dag var tilkynnt að Ísland myndi mæta Kúveit, undir stjórn Arons Kristjánssonar, í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardalshöll, 7. og 9. janúar. Íslenski hópurinn mun því, öfugt við mörg síðustu ár, spila og æfa hérlendis fram að stórmóti, fyrir HM í Þýskalandi þar sem fyrsti leikur er svo 15. janúar. „Ég er mjög ánægður og þakklátur Aroni og Kúveit að hafa brugðist svona við og verið tilbúnir að koma. Mig langaði að prófa og sjá hvernig það kæmi út að strákarnir fengju að vera lengur hér heima, við næðum fleiri og beittari æfingum,“ segir Aron í samtali við Vísi í dag. Klippa: Snorri Steinn um Kúveita og Egypta Gerðist á vonlausum tíma: Sumir sögðu nei takk og aðrir svöruðu ekki Ísland spilaði vináttulandsleiki við heimamenn í Egyptalandi í maí og í staðinn ætluðu Egyptar að mæta hingað til lands í janúar. Það samkomulag sviku þeir og þá voru góð ráð dýr fyrir Snorra og hans vinnuveitendur hjá HSÍ. Snorri leysti málið með því að bjalla í Aron Kristjánsson, sem þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 2012-2016 en stýrir nú Kúveit með Stefán Árnason sér til aðstoðar. „Það var auðvitað mjög slæmt að Egyptarnir skyldu bakka út og gerðist á vonlausum tíma upp á að finna eitthvað annað. Við fórum þá í ákveðna vinnu, sendum á alls konar þjóðir og buðum þeim að koma hingað heim. Sumir svöruðu bara nei takk, aðrir svöruðu ekkert, en ég tékkaði sjálfur á Aroni og honum leist bara vel á þetta. Auðvitað þurftu þeir aðeins að funda en núna er þetta klárt og ánægjulegt að vita hvernig undirbúningurinn er,“ segir Snorri. Egyptaland varð í 5. sæti á síðasta heimsmeistaramóti en Kúveit í 27. sæti, og öllum ljóst að getumunurinn á liðunum er mikill. Snorri segir að leikirnir í janúar muni þó nýtast vel. „Við mátum það þannig að þetta væri betra en að æfa bara. Það er á engan hallað með því að segja að Egyptar séu hærra skrifaðir en Kúveit og auðvitað vill maður alltaf vera að máta sig við þá bestu. En það var okkar mat að það væri mikið betra að fá leiki hér heima, í Laugardalshöllinni, og við gerum bara ráð fyrir eftirvæntingu og spennu í þjóðfélaginu.“ Ísland spilar við tvær Asíuþjóðir – Barein og Japan – í riðlakeppninni á HM en það var þó ekki eitthvað sem Snorri hafði í huga þegar hann hringdi í Aron. „Vinnubrögð sem við myndum aldrei temja okkur“ „Ég ætla ekki að fara að bera það of mikið saman. Þetta er bara hluti af okkar undirbúningi í heild sinni. Við þurfum að vera góðir og rúmlega það, og ætlum okkur stóra hluti í janúar. Það er margt sem við þurfum að vinna í,“ segir Snorri. En hvernig er sambandið við Egypta eftir það sem á undan er gengið? „Þetta eru ekki, og voru ekki fyrir þetta, mínir bestu vinir,“ segir Snorri hálfhlæjandi. „Ég er ekki í miklum samskiptum við þá. Þetta fór bara í gegnum samböndin og þeir drógu sig út úr þessu verkefni. Auðvitað eru það gríðarleg vonbrigði og vinnubrögð sem við hér myndum aldrei temja okkur. Við erum með skriflega staðfest frá þeim að þeir ætluðu að koma. En þegar maður lítur til baka þá eru kannski einhver teikn á lofti um að þeir ætluðu ekki að mæta og þannig er það bara. Núna er komin lausn og ég nenni ekki að velta þessu meira fyrir mér,“ segir Snorri sem innan tíðar þarf að huga að vali á næsta landsliðshópi, fyrir fyrstu leiki í undankeppni EM sem fram fara í byrjun nóvember. Ísland mætir þá Úkraínu á heimavelli 4. nóvember og svo Eistlandi í Tallin fjórum dögum síðar.
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira