„Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 7. september 2026 22:10 Einar Guðnason,þjálfari Víkings Reykjavíkur vísir Einar Guðnason, þjálfari kvennaliðs Víkings Reykjavíkur í fótbolta var sáttur með mikilvægan 2-1 sigur síns liðs gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í kvöld en vandaði mótastjórn ekki kveðjurnar í viðtali eftir leik. „
Tilfinningin er frábær, þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við kannski ekki ná að stjórna honum endilega en við fengum hættulegri færin og ég segi að þetta sé verðskuldaður sigur,“ sagði Einar eftir 2-1 sigurinn á Stjörnunni í Miðgarði. Klippa: Ekki boðlegt og vanvirðing við kvennaboltann Var þetta þriðji sigur Víkinga í röð í Bestu deildinni og spyrnti liðið sér af botninum með sigrinum í kvöld, sem var torsóttur. Sigurmarkið kom á lokamínútu venjulegs leiktíma þar sem Thea Rhode kom boltanum í netið. Aðspurður hvernig tilfinningin hafi verið þegar staðan var jöfn 1-1, þá var Einar stuttorður. „Ég vissi að við myndum ná að vinna þennan leik.“ „KSÍ á ekki að leyfa þetta“ Einar lýsti yfir óánægju sinni í viðtali fyrir leik hvað varðaði leikstaðinn, en leikið var inn í Miðgarði þar sem verið er að skipta um gervigras á Samsung-vellinum, heimavelli Stjörnunnar. Afstaða hans breyttist ekkert eftir leik. „Það var ekkert verra fyrir annað hvort liðið, en það er fáránlegt að við séum að spila hérna. Boltinn fer upp í loftið hérna, áhorfendur sjá ekki völlinn, myndatakan er örugglega hörmuleg, ekki það að hann er frábær myndatökumaður. Það er bara lágur standard á þessari deild að leikir séu að fara fram hérna sem skipta máli í Íslandsmóti. Þetta væri eins og við værum að spila í Berserkjahrauni [heimavöllur BF108 í 4. deild]. KR-ingarnir fóru á Þróttara-völlinn, þeir spiluðu ekki á gervigrasvellinum sínum. Lið með standard fara á alvöru velli, ekki eitthvað svona kjaftæði. KSÍ á ekki að leyfa þetta. Þetta er bara vanvirðing við deildina.“ „Lélegur standard“ Að lokum var Einar spurður út í komandi skiptingu á deildinni. Einar vildi þó ræða leikjaniðurröðun og leiktíma í lokaumferð deildarinnar fyrir skiptingu, sem honum finnst gagnrýnisverð í meira lagi. „Það er annað sem er fáránlegt og lélegur standard á þessari deild, að umferðin fari ekki fram á sama tíma. Það að hún fór fram á fjórum mismunandi tímum hafði gríðarleg áhrif á aðra leiki. Það þyrfti eiginlega að spila mótið aftur, allavegana þessa umferð aftur í rauninni. Þetta er ekki boðlegt og þetta er önnur vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi. Þeir sem stjórna þessu þurfa að hysja upp um sig brækurnar og sýna að þeim sé annt um þessa deild, ekki láta svona kjaftæði gerast trekk í trekk,“ sagði Einar að lokum.
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Stjarnan KSÍ Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira