Erlendir upptökustjórar bjóða fram krafta sína 2. nóvember 2006 18:00 Hljómsveitin Shadow Parade hefur gefið út sína fyrstu plötu, Dubious Intentions. Málverkið á umslagi plötunnar er eftir Þránd Þórarinsson.
Frumburður hljómsveitarinnar Shadow Parade, Dubious Intentions, er kominn út. Freyr Bjarnason spjallaði við söngvarann Begga Dan um plötuna og þann langa tíma sem hún tók í vinnslu. Platan inniheldur ellefu lög og hefur tónlistinni verið lýst sem lágstemmdu nýrokki í líkingu við hljómsveitir eins og Coldplay, Radiohead, Elbow og Jeff Buckley. Þegar hafa nokkur lög af plötunni hljómað í útvarpi við töluverðar vinsældir.Eitt ár í upptökumHljómsveitin annaðist sjálf upptökustjórn og upptökur plötunnar í hljóðveri sínu, Stúdíó Sorpu. Hinn reyndi hljóðmaður og upptökustjóri Óskar Páll Sveinsson sá um hljóðblöndun og eftirvinnslu.Söngvarinn Beggi Dan játar að upptökurnar hafi staðið alltof lengi yfir. „Ég held að upptökuferlið hafi tekið um eitt ár. Við vorum að gera þetta á kvöldin og um helgar í stúdíói sem við byggðum í kringum þetta,“ segir Beggi.Mannlegra elementShadow Parade var stofnuð í janúar árið 2004 af Begga og Jóni Gunnari Margeirssyni. Upphaflega var hljómsveitin rafdúett en seinna meir bættust bræðurnir Andri og Magnús Magnússynir í hópinn og áherslan var færð á rokk og ról. Síðan þá hafa þeir Örn Eldjárn og Bjarni Margeirsson gengið til liðs við sveitina. „Við byrjuðum í lágstemmdri elektróník. Lögin sem eru á plötunni eru flest til í þeim útsetningum. Við vorum tveir í þessu þá en okkur langaði til að fá meira mannlegt element í þetta og fengum bræðurna Andra og Magna. Þá var stemningin allt öðruvísi,“ segir Beggi. „Sum lögin á plötunni eru orðin fimm til sex ára gömul. Við höfum náð að móta þau og þróa eins og við viljum hafa þau.“ Áhugasamir upptökustjórarÞrír erlendir upptökustjórar hafa sýnt Shadow Parade áhuga og vilja taka upp næstu plötu sveitarinnar. Á meðal þeirra er Andy Johns sem hefur unnið með frægum sveitum á borð við Led Zeppelin við plötuna IV og The Rolling Stones er þeir gerðu Exile on Main Street. Einnig hefur hann m.a. unnið með Jimi Hendrix, Rod Stewart og Van Halen. Hinir tveir upptökustjórarnir hafa unnið með stórum nöfnum á borð við Korn, Metallica, Guns N"Roses og Low. „Við erum að hugsa um að gera næstu plötu öðruvísi og fá aðstoð. Við viljum gera þetta á einum þéttum mánuði,“ segir Beggi og bætir því við að sveitin sé þegar farin að semja lög á þá plötu. Til Bandaríkjanna í marsErlend útgáfufyrirtæki hafa einnig sýnt hljómsveitinni áhuga og vilja dreifa plötunni. Kemur hún væntanlega út erlendis í tveimur til þremur löndum eftir áramót.Útgáfutónleikar Shadow Parade verða í Tjarnarbíói hinn 18. nóvember. Í mars á næsta ári eru síðan fyrirhugaðir tónleikar í þremur borgum í Bandaríkjunum, þar á meðal New York.Þess má geta að málverk eftir myndlistarmanninn Þránd Þórarinsson sem hefur verið í læri hjá hinum heimsfræga málara Odd Nerdrum prýðir umslag nýju plötunnar en listakonan Tinna Kirsuber sá um aðra listsköpun.
Menning Mest lesið Blautir búkar og pylsupartí Menning Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Tónlist Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum Lífið Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Lífið Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lífið Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Lífið Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Lífið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið Fleiri fréttir Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp