Tvenna hjá Timberlake 4. nóvember 2006 09:30 Popparinn og kynnir hátíðarinnar, Justin Timberlake, fékk tvenn MTV-verðlaun. MYND/AP
Justin Timberlake var valinn besti popparinn og besti karlkyns tónlistarmaðurinn á evrópsku MTV-tónlistarverðlaunahátíðinni sem var haldin með pomp og prakt í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. Hljómsveitin Red Hot Chili Peppers frá Los Angeles fékk verðlaun fyrir bestu plötuna, hina tvöföldu Stadium Arcadium, og Christina Aguilera var valin besti kvenkyns tónlistarmaðurinn.Crazy besta lagiðLordi Finnska Evróvisjón-sveitin Lordi lauk kvöldinu með glæsibrag.Hátíðin var send beint út til sautján landa og heppnaðist með eindæmum vel. Mikil stemning ríkti í The Bella Center þar sem verðlaunin voru afhent. Spiluðu þar m.a. hljómsveitirnar Muse og Lordi frá Finnlandi sem lauk kvöldinu. Auk þess safnaðist mikill mannfjöldi saman á Ráðhústorginu þar sem Snoop Dogg, Keane, Jets og The Killers tróðu upp í kuldanum. Lag Gnarls Barkley, Crazy, var valið best auk þess sem Muse var valin besta jaðarhljómsveitin. Besta hljómsveitin var aftur á móti kjörin hin fornfræga Depeche Mode. Kanye West dónalegurrihanna Rihanna var valin besta R&B söngkonan. Hún kom einnig fram á hátíðinni og var atriði hennar glæsilegt.Justin Timberlake var kynnir á hátíðinni og stóð sig með prýði. Athygli vakti þegar hljómsveitin Justice vs. Simian tók á móti verðlaunum fyrir besta myndbandið, við lagið We Are Your Friends. Ruddist þá rapparinn Kanye West, sem hafði áður verið kjörinn besti hiphop-tónlistarmaðurinn, inn á sviðið og sagði það hneisu að hann skyldi ekki hafa fengið verðlaun fyrir myndbandið Touch The Sky. „Ef ég fæ ekki þessi verðlaun þá er dómnefndin illa trúverðug,“ sagði hann. - fb
Menning Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira