Lítil fjölgun starfa í Bandaríkjunum 2. júní 2006 17:00 Mynd/AFP
Fjölgun starfa í Bandaríkjunum í síðasta mánuði var sú minnsta í 7 mánuði auk þess sem dró úr launahækkunum á sama tíma. Hvort tveggja var undir væntingum markaðsaðila og hefur í kjölfarið dregið úr verðbólguvæntingum . Þá eru horfur á að stýrivaxtahækkanir séu á næsta leiti í Bandaríkjunum. Í hálf fimm fréttum greiningardeildar KB banka segir að úr framvirkum samningum megi lesa að innan við helmings líkur séu á vaxtahækkun bandaríska seðlabankans í júlí miðað við 70 prósenta líkur í gær. Merki þess sáust á gjaldeyrismörkuðum og féll gengi dollars gagnvart evru um næstum eitt prósentustig í dag. Þá birtust í dag jákvæðar tölur um stöðu á bandarískum vinnumarkaði. Atvinnuleysi lækkaði um 0,1 prósent í 4,6 prósent og hefur atvinnuleysi ekki mælst minna síðan í júlí 2001. Hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungs í Bandaríkjunum var töluverður og samsvaraði 5,3 prósenta á ársgrundvelli. Hinsvegar er búist við að hagkerfið vaxi minna, eða um 3-3,5 prósentum yfir næstu ársfjórðunga. Af þeim sökum gera hagfræðingar ráð fyrir að heldur dragi úr ráðningum á næstunni, að sögn greiningardeildarinnar.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira