Engar stýrivaxtabreytingar í Bretlandi 6. júlí 2006 12:43 Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, ásamt Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands. Mynd/AFP
Stjórn Englandsbanka ákvað að loknum mánaðarlegum fundi sínum í dag að fylgja fordæmi evrópska seðlabankans og hækka ekki stýrivexti í dag. Þeir eru 4,5 prósent og hafa staðið óbreyttir í 11 mánuði. Fjármálasérfræðingar spá því að kyrrstöðunni linni senn og muni bankinn hækka stýrivexti fyrir árslok. Mervyn King, seðlabankastjóri Englandsbanka, sagði hins vegar í síðustu viku að veiking hlutabréfamarkaða og hátt gengi breska pundsins hefði slegið á verðbólguóttann. Þrátt fyrir hækkun á eldsneytis- og raforkuverði þá hafi hækkanirnar ekki skilað sér út í verðlagið líkt og óttast var, að hans sögn. Í stjórn peningamálanefndar Englandsbanka sitja sjö stjórnarmenn. Þeir eiga að vera níu en einn hefur sagt sig úr stjórninni auk þess sem David Walton, einn þeirra, lést í síðasta mánuði. Walton hafði lengi vel verið sá eini sem ekki var fylgjandi óbreyttum stýrivöxtum Englandsbanka.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira