Ísraelar útiloka ekki stórtæka innrás í Líbanon 20. júlí 2006 18:57
Ísraelar útiloka ekki stórtæka innrás í Líbanon á næstu dögum. Ísraelsher varpaði í dag meira en tuttugu tonnum af sprengjum á Líbanon og talsmenn hersins segjast á góðri leið með að knésetja Hisbollah-samtökin. Nær allir sem hafa fallið eru blásaklausir og sérfræðingar Sameinuðu Þjóðanna segja árásirnar mögulega flokkast undir stríðsglæpi. Það er ekki mikið eftir af Dahya hverfinu í Beirút, þar sem liðsmenn Hisbollah halda sig. En því miður er þetta ekki bara hverfi Hisbollah, þarna búa alla jafna sex hundruð þúsund manns, flestir venjulegir borgarar, sem tengjast samtökunum herskáu ekki neitt. Þetta fólk hefur þurft að flýja heimili sín, enda rignir sprengjunum beinlínis niður dag eftir dag. Aðalátökin eru þó eins og áður ekki í Beirút, heldur við landamærin að Ísrael. Þar eru líka óbreyttir borgarar og sumir eru í sárum. Meira en þrjú hundruð hafa fallið síðan loftárásirnar hófust fyrir níu dögum, flestallir blásaklausir. Nú eru það þó ekki bara loftárásir, því að átökin á jörðu niðri harðna enn frekar. Bæði Ísraelskir hermenn og Hisbollah liðar hafa fallið í hörðum skotbardögum við landamærin í dag. Talsmenn ísraelska hersins útiloka ekki að enn frekara púður verði lagt í árásirnar á næstu dögum og stórtæk innrás á jörðu niðri er enn inni í myndinni. En þá verða þeir líka að flýta sér, því að þrýstingurinn frá alþjóðasamfélaginu eykst dag frá degi.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira