Studdu gjaldþrot Yukos 25. júlí 2006 14:51 Steven Theede, fyrrum forstjóri Yukos. Mynd/AFP
Meirihluti lánadrottna rússneska olíufyrirtækisins Yukos voru fylgjandi því á fundi þeirra í dag að lýsa fyrirtækið gjaldþrota. Líkur eru á að eignir fyrirtækisins verði seldar upp í gríðarmiklar skuldir Yukos við rússneska ríkið og ríkisolíufyrirtækið Rosneft. Eigendur Yukos, sem eitt sinn var stærsta olíufyrirtæki heims í einkaeigu, reyndu fram á síðustu stundu að koma í veg fyrir gjaldþrot og fá lánadrottna til að styðja hagræðingu í rekstri fyrirtækisins. Steven Theede, fyrrum forstjóri fyrirtækisins, sagði starfi sínu lausu í síðustu viku á þeim forsendum að fundur lánadrottnanna væri leiksýning. Hefðu þeir engan áhuga á hagræðingu í rekstri fyrirtæksins og hefði verið fyrirfram ákveðið að fara gjaldþrotaleiðina. Heildarskuldir Yukos námu jafnvirði tæpra 2.000 milljarða íslenskra króna en eftirstandandi skuldir fyrirtækisins nema nú um 1.200 milljörðum króna.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira