Hótaði að skora sjálfsmark 4. september 2006 19:22 William Gallas NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að það hafi neyðst til að selja varnarmanninn William Gallas á dögunum, því hann hafi hótað að skora sjálfsmark með Chelsea ef hann yrði látinn spila annan leik fyrir félagið. Í yfirlýsingunni kemur fram að Chelsea hafi tjaldað öllu til að halda Gallas áfram í herbúðum félagsins, en öfugt við það sem leikmaðurinn hafi sagt í fjölmiðlum, hafi það verið peningagræðgi hans sem varð þess valdandi að hann undirritaði ekki nýjan samning. Einnig kemur fram að Gallas hafi neitað að spila undanúrslitaleikinn við Liverpool í FA bikarnum á síðustu leiktíð og þegar liðið var í vandræðum með varnarmenn fyrir leikinn gegn Manchester City í upphafi leiktíðar nú í sumar - hafi Gallas hótað að skora viljandi sjálfsmark eða láta reka sig útaf ef hann yrði neyddur til að spila. Þá kemur fram í yfirlýsingunni að forráðamönnum Chelsea þyki það aumt af Gallas að sýna félaginu ekki meiri hollustu en raun hafi borið vitni, því hjá félaginu hafi hann orðið að stjörnu og unnið titla og hafi í besta falli geta státað af sigri í frönsku 2. deildinni áður en hann gekk til liðs við Englandsmeistarana.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Fótbolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Fótbolti Fleiri fréttir Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Glóandi gómar hjálpa til í baráttunni við alvarleg höfuðhögg „Maður er búinn að vera á nálum“ Vann mótið með lokahögginu sem var magnað vipp úr sandinum Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Khalil Shabazz til Grindavíkur Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald Karólína Lea valin best í fyrsta leik Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sjá meira