Mikil hækkun á gengi Apple 19. október 2006 15:45 iPod-spilari frá Apple.
Gengi bandaríska tækniframleiðandans Apple Computers hækkaði um 6 prósent á markaði vestanhafs í dag í kjölfar þess að fyrirtækið greindi í gær frá góðri afkomu á síðasta fjórðungi ársins, sem er fjórði fjórðungur ársins í rekstrarreikningi félagsins. Góð afkoma er að þakka mikil sala á Macintoshtölvum og iPod-spilurum. Hagnaður fyrirtækisins nam 546 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 37,3 milljarða íslenskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 430 milljónum dala eða rétt rúmlega 29,3 milljörðum króna. Tekjur námu 4,84 milljörðum dala eða 330,5 milljörðum íslenskra króna en það er 32 prósenta aukning á milli ára. Apple seldi rúmar 8,7 milljónir iPod-spilara á síðasta fjórðungi ársins en það er 35 prósenta aukning frá síðasta ári. Þá jókst sala á Macintosh-tölvum sömuleiðis um 30 prósent á sama tímabili. Greinendur hjá Banc of America hækkuðu vegna þessa verðmat á Apple. Segja þeir virði félagsins verða 84 dalir á hlut en gengið stendur í dag í um 79 dölum. Þá er fastlega búist við áframhaldandi vexti hjá félaginu en á meðal áætlana þess á næsta ári er að setja á markað tækið iPhone, farsíma sem tengja má við iPod-spilarann, og iTV, sem gerir notendur kleift að streyma tónlist, kvikmyndum og öðru margmiðlunarefni af Netinu í afþreyingagræju heimilisins.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira