Hráolíuverð lækkaði 6. nóvember 2006 10:20 Bensíndæla.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði í dag þrátt fyrir að ákvörðun OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, um samdrátt í olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari verðlækkunum á hráolíu, gekk í gildi á miðvikudag í síðustu viku. Ekki er talið víst að eining sé um ákvörðunina innan aðildarríkja OPEC. Verð á hráolíu fór hæst í rúma 78 dali á tunnu um miðjan júlí í sumar en hefur hríðlækkað síðan þá og hefur síðastu vikurnar verið á verðbilinu 57 til 61 dalur á tunnu. Ákvörðun OPEC felur í sér að minnka olíuframleiðslu um 1,2 milljónir tunna á dag til að draga úr umframbirgðum á hráolíu og sporna þannig gegn frekari verðlækkunum.Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 46 sent á markaði í New York í Bandaríkjunum í dag og stendur nú í 58,68 dölum á tunnu. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði hins vegar um 45 sent á markaði í Lundúnum í Bretlandi og fór tunnan á 58,70 dali.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira