Pardew biður stuðningsmenn West Ham afsökunar 6. desember 2006 23:16 Alan Pardew var ekki sáttur við sína menn í kvöld enda nær liðið ekki að slíta sig upp af fallsvæðinu NordicPhotos/GettyImages
Alan Pardew var ekki par hrifinn af frammistöðu sinna manna í West Ham í kvöld þegar liðið lá 2-0 á heimavelli fyrir Wigan fyrir framan þá Eggert Magnússon og Björgólf Guðmundsson sem sátu í heiðursstúkunni. "Frammistaða okkar var okkur sjálfum til lítils sóma og mig langar að biðja stuðningsmenn okkar sem borguðu sig inn á leikinn afsökunar fyrir hönd leikmanna liðsins. Ef leikmenn þessa liðs ætla að vera áfram í úrvalsdeildinni verða þeir að gjöra svo vel að fara að axla ábyrgð. Það er eins gott að menn fari að kveikja á því að við erum komnir í vond mál í þessari deild og ég hef grun um að menn sjái það líka þegar þeir koma heim í kvöld og skoða stöðuna í deildinni," sagði Pardew. Paul Jewell hjá Wigan var að vonum sáttari við frammistöðu sinna manna sem voru teknir í bakaríið af Liverpool á heimavelli sínum í síðustu umferð. "Ég sagði strákunum að þeir yrðu að sína mér úr hverju þeir eru gerðir í kvöld og þeir gerðu það svo sannarlega. Það er mjög erfitt að koma hingað á Upton Park og spila fyrir framan þessa hávaðasömu áhorfendur og því verður maður að reyna að lækka í þeim rostann frá byrjun. Það tókst okkur og við réðum ferðinni frá upphafi til enda."
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn Littler segist vera betri íþróttamaður en Yamal Fótbolti „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Íslenski boltinn Finnst Salah taka niður fyrir sig með því að fara til Tyrklands Fótbolti Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Handbolti Kjartan Kári á leiðinni í Víking Íslenski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Sjá meira