Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 07:30 Erik ten Hag, þáverandi knattspyrnustjóri Manchester United, gefur Cristiano Ronaldo fyrirmæli áður en hann kemur inn á völlinn sem varamaður hjá United. EPA/VINCE MIGNOTT Erik ten Hag, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, ber Cristiano Ronaldo ekki góða söguna frá því að þeir unnu saman hjá enska félaginu.
Ten Hag telur að Ronaldo hafi hvorki verið í nógu góðu formi né nógu staðráðinn í að vera það á meðan þeir störfuðu saman hjá Manchester United. Hann bætti við að portúgalski framherjinn hafi ekki lengur getað skilað sínu á vellinum eftir að hann yfirgaf Juventus árið 2021. Ten Hag sagði einnig að sú hugmynd heimsins um að eitt helsta einkenni Ronaldo sé eljusemi hans við að færa líkamlegu mörkin sín sé ekki alveg rétt, en þannig er ímyndin. 🚨 Erik ten Hag on Cristiano Ronaldo: “It’s simple: id you’re not in peak physical condition, whether in the Premier League, the Champions League, or with the Portuguese national team… …you simply have no chance of succeeding”, told ESPN NL. https://t.co/D2y6bvziqC— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 1, 2026 Ronaldo yfirgaf Juventus og sneri aftur á Old Trafford þar sem hann skoraði 27 mörk í 54 leikjum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær og síðan Ten Hag. Ten Hag átti ekki samleið með portúgölsku stjörnunni undir lok tíma hans við stjórnvölinn hjá United, þar sem hann kaus reglulega að velja Ronaldo ekki í byrjunarliðið. Taldi sig svikinn United rifti samningi Ronaldo í nóvember 2022 eftir að hann sagði í viðtali við Piers Morgan að hann hefði fundið fyrir „svikum“ af hálfu hollenska knattspyrnustjórans og gagnrýndi stjórnendur félagsins. Ten Hag, sem er nú yfirmaður knattspyrnumála hjá hollenska félaginu FC Twente, var rekinn eftir níu leiki tímabilið 2023–24 þegar United var í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ten Hag leit yfir tíma sinn hjá félaginu og sagði í þættinum Goedemorgen Eredivisie á ESPN NL um helgina: Erik ten Hag claims Cristiano Ronaldo hadn't been delivering for '7 or 8 years' before their time together at Man Utd 😳 https://t.co/VenXVLFVe7— Football on TNT Sports (@footballontnt) November 1, 2026 „Áskorunin er að fá liðið til að virka, eins og alltaf í raun. Allir leikmenn eru mikilvægir í því og maður þarf toppleikmenn til að geta unnið fyrir liðið. Sérhvert topplið verður að taka toppleikmanninum opnum örmum, en toppleikmaðurinn verður að vinna fyrir liðið. Og það var einfaldlega vandamálið með Ronaldo,“ sagði Ten Hag. Litu upp til hans „Leikmennirnir vildu vinna fyrir hann og þeir litu upp til hans, því það má ekki misskilja það. Hann er auðvitað frábær leikmaður, einn sá besti allra tíma. En það er líka raunveruleikinn að síðustu sjö, átta ár hefur hann einfaldlega ekki lengur getað skilað sínu. Frá Juventus og áfram var þetta einfaldlega búið hjá honum,“ sagði Ten Hag. Ronaldo var orðinn 36 ára þegar hann sneri aftur í ensku úrvalsdeildina og var gagnrýndur af lýsendum og sérfræðingum fyrir meinta vangetu sína til að pressa varnarmenn andstæðinganna. Í stað þess að rekja líkamlega hnignun Ronaldo til hækkandi aldurs sagði Ten Hag að fyrrverandi framherji Real Madrid „hefði ekki lengur getað fengið sig til að harka af sér sársaukann“ eins og hann orðaði það. Útskýrði það fyrir honum „Ég veitti honum að sjálfsögðu sérstaka stöðu. Ég fór líka til hans og ég ræddi við hann áður en ég tók við starfinu. Ég útskýrði fyrir honum hvernig við ætluðum að spila, hvert hlutverk hans yrði í því, hvers ég ætlaðist til af honum og hvers hann mætti vænta af mér og liðinu. En á endanum verður maður líka að skila sínu sjálfur og hann var ekki lengur fær um að keyra sig út að ystu mörkum,“ sagði Ten Hag. „Ef maður er ekki í formi í ensku úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni eða með portúgalska landsliðinu, þá á maður einfaldlega engan séns,“ sagði Ten Hag. Erik ten Hag snoeihard over Cristiano Ronaldo👀 "Hij levert al 7 of 8 jaar niet meer. Vanaf Juventus was het klaar." 🔗 https://t.co/fDUax22opZ https://t.co/Zfqc6UKlNZ— ESPN NL (@ESPNnl) November 1, 2026
Manchester United Enski boltinn Mest lesið Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Sjá meira