Fjölga þarf sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum verulega 14. desember 2006 15:22 MYND/Hari
Fjölga þarf sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum verulega á næstu árum til að mæta vaxandi þörf fyrir heilbrigðisstarfsmenn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og kynnt var í dag. Í skýrslunni er fjallað um mannaflaspá í heilbrigðisþjónustu og þar eru bæði birtar lágmarksspár og hámarkspár um þörf á vinnuafli. Samkvæmt spá Sjúkraliðafélags Íslands þarf af fjölga sjúkraliðum 16 prósent til þess að þörf um vinnuafl yrði fullnægt og þá þarf að fjölga hjúkrunarfræðingum um 14 prósent til þess að ná sömu markmiðum að mati Félas íslenskra hjúkrunarfræðinga. Bent er á í skýrslunni að undanfarin tíu ár hafiinnan við 90 sjúkraliðaleyfi verið gefin út af heilbrigðisyfirvöldum en Hagfræðistofnun telur að nauðsynlegt sé að útskrifa 120 til 140 sjúkraliða á ári til að mæta eftirspurn eftir sjúkraliðum. Sama er að segja um hjúkrunarfræðinga. Um 110 hjúkrunarfræðingar útskrifast á ári hverju en Hagfræðistofnun telur raunhæft að gera ráð fyrir að útskrifa þurfi 130 til 140 hjúkrunarfræðinga árlega. Staðan er hins vegar ekki jafnalvarleg varðandi lækna og segir í skýrslunni að 48 læknar séu útskrifaðir á ári sem sé nokkuð viðunandi. Bent er á að ríflega 1000 læknar starfi hér á landi og tæplega 500 erlendis og því væri hægt að fjölga læknum hér um tæplega 50 prósent ef allir sneru aftur heim. Þá segir Hagfræðistofnun enn fremur að að ætla megi að nægjanlegur fjöldi sjúkraþjálfara útskrifist á ári hverju, eða um 20.
Stj.mál Mest lesið Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út Innlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent „Ástandið er að versna“ Erlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Erlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Fleiri fréttir Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Bætir í vind og úrkomu í kvöld Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa Segist „eiginlega sammála“ ákvörðun Amgen Vaknaði eldsnemma til að hefja veiðar þrátt fyrir slæma veðurspá „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Kári Stefánsson í beinni, „hryllingshús“ og trillukarlar Gekk inn á lögreglustöðina í annarlegu ástandi og var snarlega handtekinn Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Sjá meira