Anita í 1500 kvikmyndahús 6. febrúar 2007 10:00 Anita Briem leikur aðalhlutverkið í stórmyndinni Journey 3-D sem miklar vonir eru bundnar við.
Kvikmyndin Journey 3-D sem Aníta Briem leikur í verður dreift í 1.500 kvikmyndahús í Bandaríkjunum á næsta ári. Kvikmyndinni Journey 3-D verður dreift í fimmtán hundruð kvikmyndahús í Bandaríkjunum þegar hún verður frumsýnd sumarið 2008. Þetta kom fram á nokkrum erlendum vefsíðum í gær. Miðað við þessa miklu dreifingu í Bandaríkjunum er ljóst að dreifingaraðilarnir New Line Cinema og Walt Disney-risinn binda miklar vonir við kvikmyndina og gera ráð fyrir að hún verði einn af stóru smellunum á næsta ári. Kvikmyndin var að hluta til tekin upp hér á Íslandi en með eitt aðalhlutverkanna fer íslenska leikkonan Anita Briem, auk Brendan Fraser og Josh Hutcherson. Hún er lauslega byggð á heimsþekktri vísindaskáldsögu Jules Verne, Voyage au centre de la Terre, en þar kemur Snæfellsjökull mikið við sögu. Eftir því sem kemur fram á kvikmyndasíðunni Coming Soon markar kvikmyndin ákveðin tímamót í kvikmyndagerð. Í fyrsta skipti verður þrívídd varpað upp á stafrænt kvikmyndatjald án þess að áhorfendur þurfi að notast við sérkennileg gleraugu en búast má við að þessi tækni verði orðin allsráðandi innan örfárra ára. Leikstjórinn Eric Brevig og tökumaðurinn Chuck Shuman notuðu meðal annars tökuvélar sem stór-leikstjórinn James Cameron byrjaði að þróa fyrir tvær þrívíðar heimildarmyndir sínar Aliens of the Deep og Ghosts of the Abyss.
Mest lesið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Lífið Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Lífið Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Lífið Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Lífið Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Lífið Katrín Tanja og Brooks eiga von á barni Lífið Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Lífið Fleiri fréttir Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira