Silikonbrjóst í skiptum fyrir dónamyndir 4. júlí 2007 06:30 Á bandarískri vefsíðu eru konur hvattar til að senda inn eggjandi myndir af sér, til að fjármagna brjóstastækkunaraðgerðir.
Vefsíða sætir gagnrýni fyrir að notfæra sér neyð kvenna. Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa fordæmt vefsíðu sem hvetur konur til að safna peningum fyrir brjóstastækkunaraðgerð í skiptum fyrir eggjandi myndir, spjall við karla á rásum, gjafir og aðra þjónustu. Vefsíðunni, sem er bandarísk, er ætlað að hjálpa konum sem ekki eiga peninga fyrir brjóstaaðgerð. Verða þær að vera minnst 18 ára og eru dónamyndirnar algjört skilyrði fyrir því að þær skrái sig á síðuna. Á móti kemur að konurnar mega skýla sér á bak við dulnefni. Þannig greinir bresk kona, sem notar dulnefnið Morgan, frá því hvernig henni tókst að safna fyrir tæplega hálfrar milljónar króna brjóstastækkun, með aðstoð karlkyns „velgjörðarmanna“ sinna. En karlarnir þurfa allir að greiða fyrir aðgang að lokuðum svæðum á síðunni. Breskir lýtalæknar hafa gengið hvað harðast í að gagnrýna vefsíðuna og segja hana siðlausa og lítillækkandi fyrir konurnar sem skrá sig á hana. Svo ekki sé talað um hversu afbakaða mynd þetta gefi af hinu langa og stranga ferli, sem fylgir ákvörðuninni um að fara í brjóstastækkun.-rve
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Janosch er allur Menning Alsæla á Akranesi Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið